Enski boltinn

Reimin var slitin hjá Messi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Messi sýnir hér dómaranum að reimin sé slitin. Þessi mótmæli dugðu ekki til.
Messi sýnir hér dómaranum að reimin sé slitin. Þessi mótmæli dugðu ekki til. vísir/afp
Lionel Messi fékk að líta gula spjaldið í leik Barcelona og Sevilla þar sem dómaranum fannst hann vera of lengi að hnýta skóþveng sinn.

Stigið var aftan á Messi í leiknum með þeim afleiðingum að hann fór úr skónum. Er Messi var að brasa við að koma sér í skóinn og reima þá fékk dómarinn nóg og spjaldaði besta knattspyrnumann heims.

Þjálfari Barcelona, Luis Enrique, greindi fjölmiðlum frá því að þessi aðgerð hefði tekið óeðlilega langan tíma þar sem reimin hjá Messi hefði slitnað.

Barcelona hefur því ákveðið að áfrýja þessu gula spjaldi til aganefndar spænska knattspyrnusambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×