Enski boltinn

Messan: Saknað þess að sjá Jóhann ekki skora meira

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Jóhann Berg Guðmundsson skoraði sitt fyrsta mark í ensku úrvalsdeildinni um nýliðna helgi.

Þá skoraði hann eitt marka Burnley er liðið lagði Crystal Palace, 3-2. Jóhann átti einnig stóran þátt í fyrsta marki liðsins.

„Jói hefur ekki skorað landsliðsmark síðan hann skoraði öll mörkin á móti Sviss. Ég hef saknað þess að sjá hann ekki skora meira,“ sagði Hjörvar Hafliðason. „Nú er hann vonandi að brjóta ísinn.“

Sjá má umræðuna um Jóhann Berg hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×