Innlent

Ráðist á konu í nótt

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Pjetur
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Þar hafði verið ráðist á konu sem var flutt á bráðamóttöku með sjúkrabíl. Lögreglan veit ekki hver gerandinn er og er málið til rannsóknar.

Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar árásin var framkvæmd en tilkynningin barst til stöðvar 2 sem sér um Hafnarfjörð, Garðabæ og Álftanes.

Innbrot og þjófnaður var framinn í Skeifunni í nótt, en þjófurinn var ekki handsamaður og er ekki vitað hver hann er. Þá var bíl ekið inn í hrossahóp á öðrum tímanum í nótt. Engin slys urðu á fólki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×