Innlent

Svikin og vísað frá á einskis manns landi milli ríkis og sveitarfélaga

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Fólk á efri árum er meðal þeirra hópa sem lenda á gráu svæði í verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Myndin er frá Hrafnistu.
Fólk á efri árum er meðal þeirra hópa sem lenda á gráu svæði í verkefnaskiptingu ríkis og sveitarfélaga. Myndin er frá Hrafnistu. vísir/pjetur
Lögfræði- og velferðarsvið Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að styðja eigi sveitarfélög „í því að standa í fæturna og hafna viðtöku nýrra verkefna sem þeim eru ekki falin með lögum“, segir í nýrri skýrslu um svokölluð grá svæði í opinberri þjónustu.

Svokölluð grá svæði eru þar sem ábyrgðarskil ríkis og sveitarfélaga eru ekki nægjanlega ljós á sviði skóla- og velferðarmála.

„Skortur á fjármögnun er án efa algengasta ástæðan. Afleiðing verður þá til dæmis langir biðlistar eftir þjónustu eða að ekki er lengur boðið upp á úrræði eða þjónustu,“ segir í skýrslunni. „Gagnvart notandanum er birtingarmyndin sú að samfellu fer að vanta í þjónustuna.“

Þá segir að niðurskurður hjá ríkisstofnunum hafi ekki síst birst í því að stofnanir hafi einhliða hætt að sinna verkefnum í hagræðingarskyni eða breytt verklagi.

„Í mörgum tilvikum jukust útgjöld samhliða hjá öðrum ríkisstofnunum en iðulega var brugðist við þeim með aukinni kostnaðarhlutdeild notenda, til dæmis varðandi lyf og aðra heilbrigðisþjónustu. Afleiðingin af því er fjölgun beiðna til sveitarfélaga um fjárhagsaðstoð til þess að standa undir þessum kostnaðarauka notenda.

Gráa svæðinu er lýst sem „einskis manns landi“ þar sem notandinn upplifir að þjónustuaðilar beggja vegna vísa honum frá.

„Grá svæði eru líklegust til þess að bitna á yngstu kynslóðunum, þar sem flókið og tímafrekt getur reynst að greina þann vanda sem við er að etja,“ segir í skýrslunni.

Á gráa svæðinu eru börn sem þurfa sérþjónustu, sjúklingar, innflytjendur, eldri borgarar, atvinnulausir, fangar, námsmenn, fatlað fólk, bótaþegar og utangarðsfólk.

Mikill kostnaður fylgir oft þessum málaflokkum. Dæmi er börn með svokallaðan fjölþættan vanda. Þar er sagt um að ræða tíu til fimmtán börn á hverjum tíma á landinu öllu.

„Svo dæmi sé tekið, er áætlaður kostnaður vegna sjö barna hjá Reykjavíkurborg um 480 milljónir króna á þessu ári,“ segja skýrsluhöfundar sem leggja til varðandi þennan þátt að ríkið leggi til 400 milljónir króna á landsvísu.

Um mögulegar úrbætur segir meðal annars að sporna verði gegn „verkefnaskriði“ milli ríkis og sveitarfélaga, viðurkennt verði að hlutverk og eðli fjárhagsaðstoðar sveitarfélaga sé að veita tímabundna neyðaraðstoð og að skýra svonefnda geiraábyrgð stuðningskerfa.

Dæmi um geiraábyrgð er að opinberar stofnanir útvegi sínum notendum táknmálstúlk.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×