Enski boltinn

Giroud var skíthræddur við ALF

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Giroud og ALF eru ekki vinir.
Giroud og ALF eru ekki vinir. myndir/getty, samsett mynd/garðar
Franski framherjinn hjá Arsenal, Olivier Giroud, hefur upplýst hvað hann hræddist mest sem krakki.

Giroud hræddist ekkert meira en geimveruna ALF úr samnefndum sjónvarpsþáttum sem nutu meðal annars mikillar hylli á Stöð 2 á sínum tíma.

Eldri bræður hans áttu það til að stríða honum mikið á þessari hræðslu við ALF.

„Hann var svo ljótur og ég var svo hræddur við hann. Bræður mínir stríddu mér oft með því að segja að ALF myndi ná mér í kvöld. Þeir gengu allt of langt í stríðni sinni,“ sagði Giroud.

Spurning hvort varnarmenn ensku úrvalsdeildarinnar nýti sér þessar upplýsingar er þeir passa upp á Giroud í næstu leikjum?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×