Þetta er meðal þess sem kemur fram í ítarlegri grein New York Times um andrúmsloftið innan herbúða Trump nú skömmu fyrir kosningar. Þar segir að nánustu samstarfmenn Trump hafi loksins tekist að sannfæra um hann að láta kosningateymið sjá um Twitter-reikning Trump sem hefur komið sér í ýmis vandræði með frjálslegri notkun á Twitter undanfarna mánuði.
Á vefsíðu New York Times má meðal annars sjá lista yfir alla þá einstaklinga og staði sem Trump hefur úthúðað á Twitter frá því að hann hóf kosningabaráttu sína. Samkvæmt talningu New York Times stendur talan nú í 282.

Óhefluð notkun Trump á Twitter hefur verið notuð gegn honum af andstæðingum. Clinton hefur sagt Twitter-notkun Trump sýna svart á hvítu að þar sé maður á ferð sem sé ekki hæfur til að gegna embætti forseta Bandaríkjanna. Trump var meðal annar spurður að því, með vísan í tíst sín, í öðrum kappræðum Bandaríkjanna.
Í grein New York Times kemur fram að fjölmiðlateymi Trump sé mjög sátt við að hafa náð yfirráðum yfir Twitter-reikningi Trump. Með því hafi þeim tekist að koma í veg fyrir að Trump geti nálgast miðil þar sem hann geti látið nánast allt flakka.
Ef rennt er yfir Twitter-síðu Trump má sjá að tístin sem þar eru efst eru mun mildari en áður og leita þarf ansi langt aftur til að finna tíst á borð við þau sem komið hafa Trump í vandræði.
Mjótt er á munum á milli Trump og Clinton. Helstu skoðanakannanir sýna þó að Clinton sé með forskotið sem hefur þó minnkað til muna á undanförnum dögum.