Göngufólk á Vatnaleið styggir fé á afréttinum Garðar Örn Úlfarsson skrifar 7. nóvember 2016 07:00 Horft yfir Hafradal á Vatnaleið. Hafradalsá rennur í Langavatnsá sem síðan fellur í Langavatn úr norðri.
Ört vaxandi fjallaferðamennska er farin að valda íslenskum fjárbændum áhyggjum. Málið var rætt á fundi fjallskilanefndar Borgarhrepps, Stafholtstungna og Norðurárdals vestan Norðurár fyrir helgi. Þriðju og síðustu leitir haustsins á svæði nefndarinnar voru sunnudaginn 16. október og skiluðu þær um eitt hundrað kindum og nokkrum erlendum ferðamönnum sem fest höfðu jeppa sinn á fjöllum. „Það er orðið dálítið mikið um gönguhópa sem fara svokallaða Vatnaleið. Þetta er náttúrlega einmitt yfir sumartímann þegar féð er á svæðinu,“ segir Sigurjón Jóhannesson, bóndi á Valbjarnarvöllum á Mýrum og fulltrúi í fjallskilanefndinni sem ræddi „aukinn ágang ferðamanna á afréttinum, gangandi og akandi“ á síðasta fundi: „Nefndin lýsir yfir áhyggjum sínum af áhrifum þess á sauðfé og vekur athygli á að auka þarf þjónustu og eftirlit með mannvirkjum samfara þeirri þróun,“ bókaði nefndin. Sigurjón segir hópa á eigin vegum og frá Ferðafélagi Íslands ganga Vatnaleiðina sem liggur frá Hlíðarvatni um Hítarvatn og Langavatn í Hreðavatn. Og það sé gott mál. „Aðalmálið, finnst mér, er ef fólk er með hunda sem eru ekki vanir fé. Þeir eru til í það að stökkva í kindur og styggja þær. Við höfum rætt að fólk hafi hundana í bandi þegar farið er um þar sem aðalfjársvæðið er,“ segir Sigurjón. Það er ekki aðeins göngufólk sem fer um þessar slóðir að sögn Sigurjóns. Mikil jeppaumferð sé um troðninga inn Langavatnsdal. „Menn eru að keyra þar og er í sjálfu sér ekkert hægt við því að gera,“ segir Sigurjón. Í fyrrnefndum leitum fyrir rúmum hálfum mánuði hafi smalar komið til hjálpar útlendingum sem skilið höfðu bíl sinn eftir kirfilega fastan í drullu. „Það átti að fara að leita að þeim en það var hægt að ná sambandi einhvers staðar og þá uppgötvaðist að þeir voru ekki týndir. Þeir slógu sér bara saman við leitarmenn,“ lýsir Sigurjón. Erlendir ökumenn aki óhikað út í hvað sem er. „Það er reyndar líka þannig með suma Íslendinga, þeir halda að það fljóti alla vega á meðan ekki sekkur.“ Fjallskilanefndin skoraði á fundinum einnig á sveitarstjórn Borgarbyggðar að beita sér fyrir því að komið verði á farsímasambandi á svæðinu. Sigurjón segir að það myndi bæta öryggi til muna. „Það er merkilegt að ekki skuli að minnsta kosti vera búið, á fjölfarinni leið eins og inn Langavatnsdal, að setja upp endurvarpa svo þar sé samband. Að vísu er hægt að fara þar sem hæst er upp en útlendingar fatta það ekki. Þeir festa bíla þarna og ganga þá kannski langar leiðir í stað þess að fara upp.“ Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Mest lesið Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Innlent Veitingahús mega vænta kæru eftir eftirlitsferðir lögreglu Innlent Mótmæltu lausn manns sem var dæmdur fyrir manndráp í fyrra Innlent Afnema tímabundið réttinn til að óska hælis Erlent Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans Innlent Birtu gögn um heilsu Harris og sjúkrasögu hennar Erlent Ráðherrann gekk inn í stækan viskíþef í flugstjórnarklefanum Innlent Hanna Rún og Nikita tryggðu Íslandi brons á Evrópumeistaramótinu Innlent Áður farið af sporinu sem dragi alltaf dilk á eftir sér Innlent Hundrað og fjögur ríki lýsa yfir stuðningi við Guterres Erlent Fleiri fréttir Nýja skipið mun betra Ráðherrann gekk inn í stækan viskíþef í flugstjórnarklefanum Veitingahús mega vænta kæru eftir eftirlitsferðir lögreglu Rafeldsneyti vegna íslenskrar tækni dugar til orkuskipta alls skipaflotans Hanna Rún og Nikita tryggðu Íslandi brons á Evrópumeistaramótinu Mótmæltu lausn manns sem var dæmdur fyrir manndráp í fyrra Dagbjört eyddi færslu eftir hörð viðbrögð Meðalaldur bænda er 66 ár - Tryggja þarf nýliðun Vonast til að ná árangri áður en aðgerðir hefjast Áður farið af sporinu sem dragi alltaf dilk á eftir sér Óvissa um framtíð ríkisstjórnarinnar og milljarðasamningur í Kína Engin ummerki um ísbirni Útkall vegna bílveltu í uppsveitum Árnessýslu Of vandræðalegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda áfram Karlmaður um sextugt lést í vinnuslysi Vatnsleki í Skeifunni Nýtt björgunarskip Landsbjargar formlega afhent „Mér fannst mjög eðlilegt að ég myndi hringja í ríkislögreglustjóra“ Tvö kvenfélög taka á móti karlmönnum Bein útsending: Ávarp Sigmundar Davíðs á flokksráðsfundi Staðan á ríkisstjórninni og félagsmálaráðherra svarar fyrir símtalið Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest Lokaleit að ísbjörnum með dróna Ríkisstjórnin á hengiflugi Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Sjá meira