Innlent

Fjögur fíkniefnamál og fjórar líkamsárásir

Bjarki Ármannsson skrifar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í nótt.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í nótt. Vísir/Kolbeinn Tumi
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast í nótt, að því er fram kemur í fréttaskeyti embættisins í morgun. Alls voru fjórir handteknir fyrir ölvunarakstur frá miðnætti og þá komu upp fjögur fíkniefnamál og fjórar líkamsárásir.

Þá voru tveir karlmenn handteknir fyrir miðnætti fyrir eignaspjöll. Annar hafði verið að skemma bifreiðar við Viðarhöfða en hinn réðst á leigubílstjóra í miðbænum og má einnig búast við kæru fyrir að hóta lögreglumönnum og að neita að segja til nafns.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×