Enski boltinn

Middlesbrough nældi í óvænt stig á Etihad | Sjáðu mörkin

Nýliðar Middlesbrough náðu að krækja í eitt stig i ótrúlegu 1-1 jafntefli gegn Manchester City á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Sergio Aguero kom Manchester City yfir undir lok fyrri hálfleiks með marki eftir góðan undirbúning Kevin De Bruyne og áttu eflaust flestir von á markaregni eftir því.

Nýliðar Middlesbrough neituðu að gefast upp og vörðust af krafti og þegar færið gafst nýttu þær möguleikann og jöfnuðu metin.

Var þar að verki hollenski miðjumaðurinn Marten de Roon á 92. mínútu en City-mönnum gafst ekki tími til að svara jöfnunarmarkinu og lauk leiknum því með 1-1 jafntefli.

Þrátt fyrir að heimamenn væru með boltann 71% af leiknum og hafi átt 29 skot gegn aðeins fimm þá skyldu liðin jöfn.

City missti því af tækifæri til þess að ná forskoti á Arsenal og Liverpool á toppi deildarinnar en þau eiga leiki á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×