Enski boltinn

Jóhann Berg allt í öllu í dramatískum sigri Burnley | Sjáðu mörkin

Jóhann Berg Guðmundsson var hetja Burnley í 3-2 sigri á Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í dag en eftir að hafa skorað annað marka Burnley í leiknum lagði hann upp sigurmarkið.

Burnley komst yfir snemma leiks með marki Sam Vokes en tíu mínútum síðar kom Jóhann Berg Burnley 2-0 yfir með fyrsta marki sínu í ensku úrvalsdeildinni.

Fékk hann sendingu inn fyrir vörnina og kom boltanum framhjá Steve Mandanda í marki Crystal Palace með góðu skoti og voru Burnley-menn á miklu flugi.

Crystal Palace tókst hinsvegar að jafna metin með mörkum frá Conor Wickham og Christian Benteke í seinni hálfleik og voru því gríðarlega spennandi lokamínúturnar.

Það var varamaðurinn Ashley Barnes sem skoraði sigurmark Burnley á 94. mínútu eftir frábæra sendingu Jóhanns en með sigrinum skaust Burnley upp í níunda sæti ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×