Heldur sigurganga Chelsea áfram? | Upphitun fyrir leiki dagsins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 5. nóvember 2016 08:00
Fimm leikir fara fram í 11. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Liðin í 4. og 6. sæti deildarinnar, Chelsea og Everton, mætast á Brúnni. Chelsea hefur unnið fjóra leiki í röð með markatölunni 11-0 á meðan Everton vann kærkominn sigur á West Ham um síðustu helgi. Everton hefur fengið á sig næstfæst mörk í deildinni (8) en vörn liðsins fær verðugt verkefni að reyna að stoppa Diego Costa, markahæsta leikmann deildarinnar. Topplið Manchester City fær Middlesbrough í heimsókn á Etihad. Eftir sex leiki án sigurs hafa strákarnir hans Peps Guardiola tekið sig taki og unnið tvo góða sigra í röð. Fyrst 0-4 sigur á West Brom og svo 3-1 sigur á Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Boro er í 15. sæti deildarinnar með 10 stig en liðið vann langþráðan sigur á Bournemouth í síðustu umferð. Sunderland, sem hefur ekki enn unnið leik í deildinni, sækir Bournemouth heim. Lærisveina Davids Moyes bíður erfitt verkefni gegn liði Bournemouth sem hefur náð í 10 stig á heimavelli á tímabilinu. Sunderland hefur aftur á móti aðeins skorað tvö mörk á útivelli í vetur. Stoke City getur unnið fjórða leikinn í röð þegar liðið sækir West Ham United heim á London Stadium. Nýi heimavöllurinn hefur ekki reynst Hömrunum gjöfull það sem af er tímabili. West Ham vann þó síðasta heimaleik sinn, 1-0 gegn Sunderland. Þá fá Jóhann Berg Guðmundsson og félagar í Burnley Crystal Palace í heimsókn. Burnley náði í stig á Old Trafford í síðustu umferð á meðan Palace tapaði fyrir Liverpool. Það var þriðji tapleikur liðsins í röð.Upphitun fyrir leiki dagsins má sjá í spilaranum hér að ofan.
Enski boltinn Mest lesið Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Enski boltinn Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Enski boltinn Skipta dómurum út fyrir gervigreind á sögufræga mótinu Sport Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti „Áægður með að hún skuli hafa tekið af skarið og látið til sín taka“ Körfubolti Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Glódís kemst ekki á verðlaunahátíðina: „Mér finnst þetta bara fáránlegt“ Fótbolti Magnaður sigur City á Barcelona og Sædís mætti Juventus Fótbolti Haukar unnu torsóttan sigur gegn Aþenu Körfubolti Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Fótbolti Fleiri fréttir Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjáðu fáránleg mistök markvarðar Leeds Ratcliffe um Ten Hag: „Ekki mín ákvörðun“ Sjá meira