Innlent

Vélsleðakerra og fólksbíll rákust saman á Suðurlandsvegi

Atli Ísleifsson skrifar
Unnið er nú að því að hreinsa veginn eftir slysið.
Unnið er nú að því að hreinsa veginn eftir slysið. Vísir/Kristófer
Engin slys urðu á fólki þegar kerra aftan í jeppa rakst í fólksbíl sem kom úr gagnstæðri átt á Suðurlandsvegi fyrir neðan Hálsahverfi í Árbæ eftir hádegi í dag.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var enginn fluttur á sjúkrahús.

Unnið er nú að því að hreinsa veginn eftir slysið.

Vísir/Kristófer



Fleiri fréttir

Sjá meira


×