Handbolti

Geir valdi Grétar Ara og Ómar Inga í hópinn fyrir leikinn í kvöld

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon spilar sinn fyrsta A-landsleik í kvöld.
Ómar Ingi Magnússon spilar sinn fyrsta A-landsleik í kvöld. Vísir/Vilhelm
Geir Sveinsson þjálfari Íslands hefur valið þá sextán leikmenn sem leika í kvöld gegn Tékklandi í Laugardalshöll en það er fyrsti leikur íslenska liðsins í undankeppni EM 2018.

Mesta spennan var í kringum hver yrði varamarkvörður Björgvins Pála Gústavssonar en það kemur í hlut hins stórefnilega Grétars Ara Guðjónssonar.

Sveinbjörn Pétursson þarf því að sitja í stúkunni eins og þeir Janus Daði Smárason og Geir Guðmundsson sem hvíla einnig í kvöld.

Hinn ungi Ómar Ingi Magnússon er því í hópnum og spilar sinn fyrsta landsleik eins og Grétar Ari. Theodór Sigurbjörnsson og Arnar Freyr Arnarsson spila einnig sinn fyrsta keppnislandsleik í kvöld.

Áður höfðu þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Stefán Rafn Sigurmannsson dottið úr hópnum vegna meiðsla.

Lið Íslands á móti Tékkum í kvöld:

Markmenn:

1. Björgvin Páll Gústavsson, Die Bergische Handball Club

20. Grétar Ari Guðjónsson, Selfoss

Aðrir leikmenn:

3. Kári Kristján Kristjánsson, ÍBV

4. Aron Pálmarsson, MKB Veszprém

5. Rúnar Kárason, TSV Hannover-Burgdorf

7. Arnór Atlason, Aalborg Handball

9. Guðjón Valur Sigurðsson, Rhein-Necker Löwen

13.Ólafur Andrés Guðmundsson, IFK Kristianstad

14. Arnór Þór Gunnarsson, Die Bergische Handball Club

21. Arnar Freyr Arnarsson, IFK Kristianstad

25. Bjarki Már Elísson, Fuchse Berlin

26. Bjarki Már Gunnarsson, EHV Aue

27. Gunnar Steinn Jónsson, IFK Kristianstad    

28. Guðmundur Hólmar Helgason, Cesson Rennes

29. Theodór Sigurbjörnsson, ÍBV

30. Ómar Ingi Magnússon, Aarhus Håndbold


Tengdar fréttir

Drengirnir þurfa að sanna sig

Mikið breytt landslið Íslands hefur leik í undankeppni EM í kvöld. Þá mætir sterkt lið Tékklands til leiks sem vann Ísland síðast með ellefu marka mun. Arnór Atlason er jákvæður fyrir komandi leikjum.

Aron ekki í hefndarhug

Aron Pálmarsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handbolta, segist ekki mæta til leiks í hefndarhug gegn Tékkum á morgun.

Geir: Við eigum harma að hefna

"Þetta er að mörgu leyti jafn riðill en ég vil vera jákvæður og meta möguleika okkar góða,“ segir Geir Sveinsson landsliðsþjálfari en Ísland hefur leik í undankeppni EM í kvöld er Tékkar mæta í Höllina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×