Enski boltinn

Gylfi skoraði en Swansea missti sigurinn úr höndunum | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í Swansea töpuðu niður unnum leik gegn Everton í 1-1 jafntefli.

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Swansea úr vítaspyrnu á 41. mínútu leiksins og var staðan 1-0 í hálfleik fyrir gestina.

Allt leit út fyrir að Swansea væri að fara ná í gríðarlega mikilvæg þrjú stig en Seamus Coleman jafnaði metin fyrir Everton á 89. mínútu og tryggði heimamönnum eitt stig.

Everton er í sjöunda sætinu með 19 stig en Swansea á botninum með sex stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×