Enski boltinn

Olivier Giroud bjargaði stigi fyrir Arsenal undir lokin gegn United | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manchester United og Arsenal gerðu 1-1 jafntefli í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í dag en leikurinn fór fram á Old Trafford í Manchester. 

Eftir nokkuð bragðdaufan fyrri hálfleik var staðan 0-0 en heimamenn í Manchester ívið sterkari aðilinn í leiknum. 

Í síðari hálfleiknum héldu heimamenn áfram uppteknum hætti og endaði það með frábæru marki frá Juan Mata þegar hann setti boltann í netið á 68. mínútu leiksins.

Staðan 1-0 og United með öll tök á vellinum. Allt leit út fyrir að heimamenn myndu ná í þrjú mikilvæg stig en Frakkinn Olivier Giroud var ekki á því máli og jafnaði hann metin fyrir Arsenal á 89. mínútu. Eina marktilraun Arsenal í leiknum og skilaði hún liðinu einu stigi.

Arsenal í þriðja sæti deildarinnar með 25 stig en Manchester United í því sjötta með 19 stig. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×