Enski boltinn

Ætlar Gerrard virkilega að velja MK Dons?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Steven Gerrard.
Steven Gerrard. Vísir/Getty
Enskir fjölmiðlar velta áfram fyrir sér framtíðaráformum enska miðjumannsins Steven Gerrard sem er að koma heim til Englands eftir tveggja ára dvöl hjá bandaríska félaginu Los Angeles Galaxy.

Nýjustu fréttir herma að Steven Gerrard hafi verið í viðræðum við MK Dons um að hann setjist í knattspyrnustjórastól félagsins. BBC segir meðal annars frá.

Steven Gerrard er goðsögn hjá Liverpool og fyrirliði liðsins í meira en áratug. Flestir sáu hann snúa aftur á Anfield en hann hefur einnig verið orðaður við félög sem er undir stjórn gömlu stjóra hans hjá Liverpool.

Steven Gerrard spilaði aldrei fyrir Jürgen Klopp, núverandi knattspyrnustjóra Liverpool, en hann spilaði fyrir Brendan Rodgers, núverandi stjóra Celtic í skosku úrvalsdeildinni og hann spilaði fyrir Rafael Benítez, núverandi stjóra Newcastle í ensku b-deildinni.  Gerrard hefur líka verið orðaður við þau félög.

MK Dons er hinsvegar að leita sér að knattspyrnustjóra og Steven Gerrard er einn af þeim sem koma til greina. Hann er aftur á móti ekki ein kosturinn.

Steven Gerrard er 36 ára gamall og gæti eflaust spilað eitt til tvö tímabil í viðbót. Hann hefur áhuga á því að fara út í þjálfun og er um það bil að klára UEFA A þjálfaragráðuna.

Það er margir sem bíða spenntir eftir því hvar Gerrard endi og því má búast við því að ensku fjölmiðlarnir haldi áfram að koma með fréttir af framtíðaplönum hans þangað til að allt skýrist betur.

Það væri hinsvegar sárt fyrir margan stuðningsmann Liverpool að sjá hann fara til MK Dons frekar en að koma aftur heim á Anfield.

Milton Keynes Dons féll úr ensku b-deildinni á síðasta tímabili og er eins og er í 21. sæti í ensku C-deildinni. Liðið er í fallsæti eftir aðeins fjóra sigurleiki í fyrstu sautján umferðunum og á það því á hættu að falla niður um deild annað árið í röð.

Milton Keynes Dons var áður hið fræga Wimbledon-lið en félagið lítur samt svo á að Wimbledon hafi ekki flutt til Milton Keynes í september 2003 heldur hafi Milton Keynes Dons verið stofnað árið 2004 þegar menn tóku upp núverandi merki og liti á búningum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×