Innlent

Líkfundur við Grandagarð

Birgir Olgeirsson skrifar
Lögreglumenn eru enn á vettvangi.
Lögreglumenn eru enn á vettvangi. Vísir
Karlmaður fannst látinn við Grandagarð í Reykjavík í morgunsárið. Fjöldi lögreglumanna var á vettvangi en vænta má frekari upplýsinga frá lögreglunni síðar í dag.

Að sögn lögreglu var það vegfarandi sem fann líkið í morgun og gerði lögreglu viðvart. Lítið er um upplýsingar að fá frá lögreglu að svo stöddu og því ekki vitað hvort málið sé rannsakað sem sakamál. 

Sjónarvottar segja lögreglu hins vegar ekki hafa girt af svæðið og það gæti mögulega bent til þess að málið sé ekki rannsakað sem sakamál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×