Fótbolti

Lampard yfirgefur New York

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Lampard skoraði 15 mörk í 31 leik fyrir New York.
Lampard skoraði 15 mörk í 31 leik fyrir New York. vísir/getty
Frank Lampard er á förum frá New York City sem leikur í bandarísku MLS-deildinni. Frá þessu var greint í dag.

Lampard gekk til liðs við New York í byrjun síðasta árs. Hann skoraði 15 mörk í 31 leik fyrir félagið sem féll úr leik fyrir Toronto í úrslitakeppni MLS-deildarinnar fyrr í þessum mánuði.

„Ég hef notið tímans hérna og er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til að spila fyrir svona frábært félag og í þessari ótrúlegu borg,“ sagði Lampard sem gefur það út á næstunni hver næstu skref hans á ferlinum verða.

Hinn 38 ára gamli Lampard lék lengst af með Chelsea en hann er markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Hann stoppaði svo stutt við hjá Manchester City áður en hann fór til New York.

Lampard hefur lýst yfir áhuga sínum á að fara út í þjálfun þegar skórnir fara á hilluna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×