„Líkt og allir aðrir, höfðum við rangt fyrir okkur,“ er haft eftir Tony Romando, framkvæmdastjóra útgáfufélagsins Topix Media, sem sá um þetta sérblað Newsweek um forsetakosningarnar í Bandaríkjunum.
Newsweek sjálft vakti máls á þessu síðastliðinn mánudag, líkt og sjá má í tístinu hér fyrir neðan, en benti á að Topix Media bæri ábyrgð á þessu og að öllum spurningum ætti að beina þangað.
From the Editors: 2 special edition covers for 2016 election outcomes were produced by a Newsweek licensee, Topix Media, and not by Newsweek pic.twitter.com/MwC4RytGbC
— Newsweek (@Newsweek) November 7, 2016
Stjórnendur hjá Topex Media gerðu það, eina forsíðu með Donald Trump og aðra með Hillary Clinton, en virtust svo vissir í sinni sök með sigur Hillary Clinton að þeir sendu 125 þúsund eintök af sérblaði Newsweek með Clinton sem forseta á forsíðunni út úr húsi áður en Bandaríkjamenn mættu á kjörstað og áður en atkvæðin voru talin.
Topix Media sá fljótlega að það hefði gert mistök og bað alla þá sem höfðu ætlað sér að selja blaðið að setja það ekki á sölu, en New York Post greinir frá því að sautján eintök hefðu selst, af þeim 125 þúsund eintök sem fóru úr húsi.
Það var nóg til þess að myndir fóru að birtast á Internetinu af forsíðu blaðsins, sem mörgum þótti sönnun þess að fjölmiðlar ytra væru með Clinton í liði. En inni í blaðinu mátti líka finna ítarlega grein um það hvernig Hillary átti að hafa unnið sigur gegn Trump í kosningunum.
„Hin nýkjörna Hillary Clinton „fór hátt“ þegar andstæðingar hennar fóru jafnvel lægra sem varð til þess að á kjördag höfnuðu Bandaríkjamenn um land allt þeim ótta og hatri sem Donald Trump bauð upp á. Hæsta glerþak vestrænnar menningar hefur verið rofið,“ segir í greininni.
Another one for the 'hubris of the media' collection ... pic.twitter.com/hBRfqTgmwe
— David Vick (@DavidVick5) November 10, 2016
Það var hins vegar þannig að Harry Truman vann Thomas Dewey í forsetakosningunum það árið. Eintak af blaðinu með þessari fyrirsögn rataði í hendur Trumans sem rétti hana brosandi til lofts því Chicago Daily Tribune hafði stutt Dewey og gengið svo langt að kalla Harry Truman fávita.
