Lentu í vandræðum með femíníska snjómokstursaðferð í Stokkhólmi Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 28. nóvember 2016 18:01
Svíar gerðu um daginn tilraun með nýtt skipulag á snjómokstri í höfuðborg sinni, Stokkhólmi. Veðurfarið þar undanfarið hefur ekki verið með besta móti og hefur snjóað dag eftir dag. Snjóruðningsmenn hafa því haft í nógu að snúast og hefur verið gripið til nýstárlegra aðferða við skipulagningu á snjómokstrinum. Aðferðin sem um ræðir kallast „femínísk snjómokstursaðferð“ en það þýðir að snjómokstur á smærri götum við skóla, leikskóla og íbúðahúsnæði er settur í forgang umfram stofnæðar. Þetta kemur fram í viðtali í Reykjavík síðdegis við Kristján Sigurjónsson í dag. Kristján er ritstjóri ferðafréttasíðunnar Túristi.is og er búsettur í Stokkhólmi. Hugmyndin er sú að með þessu sé barnafjölskyldum gert auðveldara að komast á milli staða. Fólk væri því sett í fyrsta á sæti á undan bílunum. Er þetta liður í tilraun borgaryfirvalda til þess að tryggja að starfsemi borgarinnar, sem í þessu tilviki felst í snjómokstri, henti öllum hópum samfélagsins jafnt. Í frétt Aftonbladet kemur fram að konur eru mun líklegri til þess að vera í hópi gangandi og hjólandi vegfarenda heldur en karlar sem oftar eru á bílum. Tilraunin gekk þó ekki betur en svo að vegna þessa var hafist of seint handa við að ryðja helstu stofnæðar og komust margir bílar hvorki lönd né strönd. Voru borgarstarfsmenn Stokkhólmar ekki ánægðir með tilraunina og óljóst hvort þetta verði reynt aftur.
Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun Erlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Fleiri fréttir Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjá meira