Körfubolti

Pálmar ætlar að breyta hugarfari heillar kynslóðar: Kennir strákunum sínum að skjóta eins og stelpur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Pálmar Ragnarsson að tala við strákana sína.
Pálmar Ragnarsson að tala við strákana sína. Mynd/Samsett
Pálmar Ragnarsson þjálfar yngri flokka KR í körfubolta og hefur einnig haldið fyrirlestra um þjálfun barna sem hafa slegið í gegn. Hann er alltaf að finna leiðir til að breyta hugafari krakkanna og það nýjast var að sýna strákunum að konur eru líka góðar í íþróttum.

Pálmi hefur vakið mikla lukku og athygli fyrir nýstárlega leiðir við að undirbúa strákana sína bæði fyrir körfuboltann sem og lífið sjálft.  

„Getum við með lítilli fyrirhöfn breytt hugarfari heillar kynslóðar? Alið upp heilu árgangana sem líta jöfnum augum á íþróttir kvenna og karla? Þetta byrjar allt hjá okkur þjálfurum og fullorðna fólkinu. Börn læra það sem fyrir þeim er haft," segir Pálmar í færslu þar sem hann vill að sem flestir sjái.

Um helgina ákvað Pálmar nefnilega að mæta með alla strákana sína á körfuboltaleik hjá meistaraflokki kvenna hjá KR. Áður en hann mætti á leikinn talaði hann við strákana sína og spurði þá meðal annars af hverju stelpur væru svona góðar í körfubolta.

Það stóð ekki á svari hjá strákunum sem mættu síðan á leikinn og hjálpuðu KR-stelpunum að vinna topplið Breiðabliks með góðum stuðningi á pöllunum.

Perla Jóhannsdóttir, einn leikmanna kvennaliðs KR, mætti á æfingu hjá strákunum og fór yfir nokkur atriði með þeim. Hún sýndi þeim líka hvernig á að spila í stórleikjum því hún endaði með 20 stig, 10 fráköst og 4 stolna bolta í leiknum sem strákarnir mættu á.

Pálmar tók upp daginn og setti myndband inn á fésbókina. „Tími þess að fólk tali um íþróttir kvenna eins og þær skipti minna máli er að ljúka. Allir sem fylgjast vel með vita að duglegustu og efnilegustu stelpurnar leggja nákvæmlega jafn mikið á sig og efnilegustu strákarnir,“ skrifar Pálmar við færslu sína.

„Ég gerði þetta myndband til að athuga hvaða áhrif það hefur á unga drengi ef maður talar um efnilegar stelpur sem fyrirmyndir sem hægt er að læra margt af," segir Pálmar en það má sjá myndbandið hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×