Innlent

Vinna hafin við skautasvellið á Ingólfstorgi

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Skautasvellið mun opna 1. desember.
Skautasvellið mun opna 1. desember. Vísir/Ernir
Vinna er nú í fullum gangi á Ingólfstorgi við að setja upp skautasvell sem opið verður fram á nýársdag.

Skautasvellið var einnig sett upp á síðasta ári fyrir jól og vakti mikla lukku. Því var ákveðið að endurtaka leikinn í ár en skautasvellið er á vegum Nova í samstarfi við Samsung og Reykjavíkurborg.

Skautasvellið verður opnað 1. desember og opið verður frá hádegi til tíu á kvöldin alla daga til og með 1. janúar.

Áhugasamir geta leigt sér skauta, hjálma og skautagrind á staðnum auk þess sem að jólaþorp verður eftir sem áður á Ingólfstorginu þar sem hægt verður að versla mat og drykk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×