Innlent

Reginn eignast skólabyggingar í Hafnarfirði

Sveinn Arnasson skrifar
Áslandsskóli var byggður í einkaframkvæmd um síðustu aldamót.
Áslandsskóli var byggður í einkaframkvæmd um síðustu aldamót. Vísir/Anton
Kaup Regins og VÍS á fasteignafélaginu FM-húsum ehf. kom Hafnarfjarðarbæ í opna skjöldu. Með kaupunum eignast Reginn þrjár skólabyggingar í Hafnarfirði, auk skrifstofuhúsnæðis og Sjálandsskóla í Garðabæ. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar ætlar að skoða málið.

FM-hús ehf. er fasteignafélag sem á eignir upp á tæpa fjóra milljarða króna. Stærstu eignir fyrirtækisins eru Áslandsskóli í Hafnarfirði, leikskólarnir Hörðuvellir og Tjarnarás í Hafnarfirði, auk Sjálandsskóla í Garðabæ. Samningar Hafnarfjarðarbæjar við FM-hús um leigu á fasteignunum vegna skólastarfs renna út 2027 og þarf þá að semja að nýju um leigukjör.

Einkaframtak af þessu tagi var mikið notað hjá Hafnarfjarðarbæ um aldamótin síðustu. Fjöldi bygginga var byggður í einkarekstri. Nýsir átti einnig nokkrar byggingar sem Hafnarfjarðarbær keypti fyrir nokkrum misserum til baka.

Haraldur Líndal Haraldsson verðandi bæjarstjóri. Hafnarfjörður.


„Þessi sala á eignum FM-húsa kom okkur hjá Hafnarfjarðarbæ á óvart og vissum við ekki um söluna á þessum eignum fyrr en búið var að selja fyrirtækið,“ segir Haraldur L. Haraldsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar. „Í framhaldinu munum við skoða öll málsskjöl og fara ítarlega ofan í málið. Að öðrum kosti get ég ekki tjáð mig um þessa sölu núna.“

Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, segir samningana sem Hafnarfjarðarbær eigi við FM-hús vera mjög hagstæða fyrir bæjarfélagið. Nú muni fara í hönd endurskipulagning á fyrirtækinu og eignir hreinsaðar úr því þannig að aðeins standi eftir skólahúsin fjögur, þrjú í Hafnarfirði og eitt í Garðabæ. „Reginn hefur sérhæft sig í samstarfi við opinbera aðila um rekstur fasteigna. Það hefur gengið mjög vel til að mynda með Egilshöll í Reykjavík þar sem við erum í góðu sambandi við borgina,“ segir Helgi.

Helgi segir það ekki útilokað að selja Hafnarfjarðarbæ þessar eignir í fyllingu tímans. „Það kemur allt til greina í þessum efnum,“ segir Helgi.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×