Innlent

Elliðaár skili hærri tekjum

Garðar Örn Úlfarsson skrifar
Elliðaárnar eru gjöfular á lax við liðsmenn Stangaveiðfélags Reykjavíkur.
Elliðaárnar eru gjöfular á lax við liðsmenn Stangaveiðfélags Reykjavíkur. vísir/vilhelm
Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti nýlega að verða við ósk Stangaveiðifélags Reykjavíkur og framlengja samning um veiði í Elliðaánum út árið 2018.

Samningur um Elliðaárnar átti að renna út í lok þessa árs að því er fram kemur í greinargerð Bjarna Bjarnasonar forstjóra sem lögð var fyrir stjórn OR. Reykjavíkurborg er eigandi árinnar en OR umsjónaraðili út árið 2018 samkvæmt samningi frá 2001.

Framlenging samnings OR við Stangaveiðifélagið var reyndar tekin fyrir í stjórn fyrirtækisins í fyrra en ekki afgreidd vegna óvissu um fyrirætlan Reykjavíkurborgar varðandi svæðið.

Bjarni Bjarnason, forstjóri OR.
„Stjórn taldi þá réttast að ákvörðun um framlengingu samnings biði niðurstaðna starfshóps um framtíð Elliðaárdals. Ekki liggur [fyrir] hvað Reykjavíkurborg hyggst með framtíð Elliðaárdals eftir því sem næst verður komist, en á þessum tímapunkti er mikilvægt að samningur við leiguaðila ánna liggi fyrir enda komið að því að markaðssetja og selja veiðileyfi vegna ársins 2017,“ segir í greinargerðinni.

Þá kemur fram að OR greiði 16,5 prósent af brúttótekjum seldra veiðileyfa til Veiðifélags Elliðavatns vegna afnota af uppeldissvæðum laxaseiða í samræmi við samkomulag á milli Reykjavíkurborgar og Veiðifélags Elliðavatns frá 1975.

Stangaveiðifélagið sjái um þessar greiðslur svo framlenging samkomulagsins þýði ekki aukinn kostnað fyrir Orkuveituna.

Þess má geta að starfshópurinn sem forstjóri OR nefnir skilaði af sér skýrslu í apríl á þessu ári. Hópurinn segir æskilegt að auka tekjur og nýta þær í innviðauppbyggingu og umhirðu í Elliðaárdal.

„Skoða þarf verðlagningu, möguleikann á að bjóða upp á veiðileyfi í mismunandi verðflokkum. Ekki megi þó hækka verð of mikið, veiði í Elliðaánum á að vera öllum möguleg sem það vilja að mati starfshópsins og er mælt með að Stangaveiðifélagið skoði leiðir um hvernig megi rýmka fyrir umsækjendum um veiðileyfi þannig að fleiri eigi aðgang að því,“ segir starfshópurinn og leggur til að rætt verði við Stangaveiðifélagið um þessi mál. 

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu




Fleiri fréttir

Sjá meira


×