Óðinn Þór tryggði FH stigin tvö í Eyjum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. nóvember 2016 19:57 Óðinn Þór skoraði sex mörk fyrir FH. vísir/ernir
Óðinn Þór Ríkharðsson tryggði FH sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Eyjum í 13. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Lokatölur 23-24, FH í vil. Með sigrinum fór FH upp í 3. sæti deildarinnar en ÍBV er enn í því sjötta. FH-ingar voru með frumkvæðið í leiknum í kvöld þótt munurinn á liðunum væri sjaldnast mikill. FH leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 8-10, og var 2-4 mörkum yfir lengst af í seinni hálfleik. Arnar Freyr Ársælsson virtist hafa farið langt með að tryggja FH sigurinn þegar hann kom liðinu fimm mörkum yfir, 17-22, þegar átta mínútur voru eftir. Eyjamenn voru hins vegar ekki á þeim buxunum að gefast upp, svöruðu með 6-1 kafla og jöfnuðu í 23-23. En Óðinn Þór sá til þess að FH færi með bæði stigin af Eyjunni þegar hann skoraði sigurmarkið um hálfri mínútu fyrir leikslok. Óðinn Þór var markahæstur hjá FH með sex mörk en þeir Halldór Ingi Jónasson og Einar Rafn Eiðsson komu næstir með fjögur mörk hvor. Sigurbergur Sveinsson skoraði sjö mörk fyrir ÍBV og Theodór Sigurbjörnsson sex.Mörk ÍBV: Sigurbergur Sveinsson 7/2, Theodór Sigurbjörnsson 6, Kári Kristján Kristjánsson 4/1, Grétar Þór Eyþórsson 3, Elliði Snær Viðarsson 2, Dagur Arnarsson 1.Mörk FH: Óðinn Þór Ríkharðsson 6/1, Halldór Ingi Jónasson 4, Einar Rafn Eiðsson 4/2, Gísli Þorgeir Kristjánsson 3, Ísak Rafnsson 2, Ágúst Birgisson 2, Arnar Freyr Ársælsson 2, Jóhann Karl Reynisson 1.
Olís-deild karla Mest lesið Hafþór Júlíus annar sterkasti maður jarðar: Setti tvö heimsmet Sport Fékk rautt spjald fyrir að pissa Fótbolti Vill eignast lið í hverri heimsálfu Fótbolti Undirbýr sig fyrir NBA tímabilið á bólakafi Körfubolti Níræð tugþrautarkona með 35 heimsmet Sport Söngurinn um Haaland kom í bakið á honum: „Fyndinn náungi“ Enski boltinn Rúnar Páll skýtur á KR: Svona vinna „snillingarnir í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Segir Sterling hafa brugðist liðsfélögum sínum Enski boltinn Bronshetja Svía í bann fyrir mótmælin Sport Fengu að heyra það frá Ancelotti Fótbolti Fleiri fréttir Fóru illa að ráði sínu gegn Egyptum Dagur Árni í liði mótsins á EM Ungu strákarnir okkar grátlega nálægt bronsi Stelpurnar unnu Gíneu en spila um Forsetabikarinn Gull, silfur og brúðkaup Stórt tap í undanúrslitum gegn Dönum Íslendingar í undanúrslit á EM Bóna bíla til að eiga fyrir Evrópukeppni Tekur fimmtánda tímabilið með FH Stór skellur í fyrsta leik á HM í Kína Tap gegn Spáni en Ísland gæti enn spilað um verðlaun „Ætti að læsa þann inni sem fann upp á þessu kerfi“ Óttast um framtíð handboltans á Ólympíuleikunum Íslenski Daninn náði slemmunni „Nú færðu loksins tíma til að gera það sem þú hefur mest gaman af“ Rústuðu Þjóðverjum í úrslitaleiknum Enn og aftur unnu Spánverjar brons Tíundu gullverðlaun Þóris sem þjálfara Noregs Handboltaparið bæði í úrslitum á Ólympíuleikunum Fyrstu verðlaun Dana í tuttugu ár Hetjulegur endasprettur dugði Slóvenum skammt Alfreð stýrði Þýskalandi í úrslitaleik Ólympíuleikanna Hver er þessi þýski Petersson sem skaut Frakkana í kaf? Þórir með norska liðið í úrslitaleik Ólympíuleikanna Frakkar í úrslit eftir dramatík Norðmenn úr leik og Slóvenar í undanúrslit í fyrsta sinn Heimsmeistararnir áfram í undanúrslit eftir spennutrylli gegn Svíum Þjóðverjar í undanúrslit eftir ótrúlega dramatík Spánverjar í undanúrslit eftir mikla spennu og framlengingu Norsku stelpunar hans Þóris flugu í undanúrslit Sjá meira