Innlent

Tillaga Íslands um veiðibann á karfa felld á fundi fiskveiðiráðsins

Svavar Hávarðsson skrifar
Afli úthafskarfa er ekki svipur hjá sjón miðað sem var um árabil – ofveiði er staðreynd.
Afli úthafskarfa er ekki svipur hjá sjón miðað sem var um árabil – ofveiði er staðreynd. Vísir/Stefán
Tillaga Íslands um að stöðva veiðar á úthafskarfa á Reykjaneshrygg árin 2017 og 2018 var felld á ársfundi Norðaustur- Atlantshafsfiskveiðiráðsins (NEAFC) í síðustu viku.

Í tilkynningu frá atvinnu- og nýsköpunarráðuneytinu segir að þessi niðurstaða fundarins sé mikil vonbrigði fyrir Ísland. Þess í stað var samþykkt tillaga um 7.500 tonna heildarveiði 2017.

Kom einnig fram á fundinum að Rússar munu setja sér einhliða kvóta upp á 25 þúsund tonn, þannig að heildarveiðin getur orðið um 30 þúsund tonn. Ráðið fer með stjórn fiskveiða utan lögsagna einstakra ríkja á Norðaustur-Atlantshafi. Aðild að því eiga Danmörk (f.h. Færeyja og Grænlands), Evrópusambandið, Ísland, Noregur og Rússland.

„Um er að ræða tvo sérstaka karfastofna, sem báðir hafa verið ofveiddir um árabil og eru í útrýmingarhættu ef ekkert er að gert,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins.

Rússland viðurkennir ekki stofnmat ICES fyrir karfa við Reykjaneshrygg og setur sér einhliða kvóta sem á þessu ári er því nær þrefalt meiri en ráðlögð heildarveiði. Evrópusambandið og Danmörk hafa síðan talið óásættanlegt að Rússar sætu einir að veiðunum og lagt fram tillögu um takmarkaðar veiðar. Ísland hefur lagt til stöðvun veiðanna, eins og áður sagði.

Alþjóðlegir rannsóknaleiðangrar gefa til kynna að stofnstærð efri stofns úthafskarfa hafi minnkað úr 2,2 milljónum tonna árið 1994 í um 91 þúsund tonn árið 2013. Ekki var farinn leiðangur árið 2015 eins og áætlanir gerðu ráð fyrir vegna þess að Rússar drógu sig út mánuði áður en hann hófst. Næsti leiðangur er áætlaður í júní/júlí 2018. Mat neðri stofns úthafskarfa í alþjóðlegum karfaleiðangri árið 2015 er það lægsta síðan mælingar hófust árið 1999.



Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×