Innlent

Hvetur rithöfunda til að skrifa bækur um unglinga fyrir unglinga

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Ungur lestrarhestur hvetur íslenska rithöfunda til þess að skrifa fleiri bækur um unglinga fyrir unglinga og þannig bjarga því að lestar áhugi þeirra minnki. Hann er vonsvikinn með hvað fáar unglingabækur koma út í ár.

Róbert Aron Garðarsson vakti athygli eftir að grein sem hann ritaði og birtist Vísi í gær. Í greininni segist Róbert hafa orðið fyrir vonbrigðum með blaðið Bókatíðindi sem barst inn á heimili fjölskyldunnar á dögunum en blaðið er gefið út í aðdraganda jólabókaflóðsins fyrir hver jól. Blaðinu fletti Róbert í von um að sjá góðar eða skemmtilega bækur sem unglingar gætu lesið.

„Ég varð fyrir vonbrigðum mestan partinn með ungmennabækurnar. Þegar að ég var búinn að fletta í gegnum barnabækurnar nokkuð spenntur til þess að sjá þessar klassísku ungmennabækur sem að ég hef einhvern veginn alltaf tekið eftir í þessu blaði,“ segir Róbert Aron.

Formaður Félags Íslenskra bókaútgefenda tekur undir áhyggjur Róberts.

„Við getum alltaf gert betur bókaútgefendur og fjölgað bókum í þessum flokki. Ég vil þó benda á það að ungmennaflokkurinn er glænýr flokkur í bókatíðindum og við erum í dálitlum skilgreiningarvanda. Hvað flokkast sem barnabók. Hvað flokkast sem bók fyrir fullorðna. Og hvað fer þarna akkúrat á milli,“ segir Egill Örn Jóhannsson, formaður Félags íslenskra bókaútgefenda.

Róbert Aron segir að þótt úrvalið hafi ekki verið mikið hafi nokkrar bækur verið í Bókatíðindum sem hann hafði áhuga á.

„Eins og til dæmis Vetrarfrí og Vetrarhörkur. Ég hef heyrt að þær séu mjög skemmtilegar. Eða Víghólar hún hljómar skemmtilega en það eru margar þarna sem að eru bara ekki, eða teljast ekki samkvæmt kennurum ekki gott lesefni.

Áður hefur komið fram í fjölmiðlum að lestrar áhugi ungmenna hafi minnkað og þá sérstaklega drengja.

„Við lesum lítið en það er aðallega út af því að við finnum ekki gott lesefni sem okkur finnst skemmtilegt. Mér finnst gaman að lesa bækur sem eru annað hvort skrifaðar til unglinga eða um unglinga,“ segir Róbert Aron.

Hvað mundir þú vilja segja við rithöfunda sem eru með góða bók í kollinum en eiga eftir að skrifa hana?

„Ég myndi segja skrifið hana. Ég myndi ekki hika við það. Ég myndi frekar skrifa hana að því að þið gætuð bjargað því að við lesum ekki nógu mikið,“ segir Róbert.

 

 


Tengdar fréttir

Blindur er bóklaus maður

Nú eru að koma jól og margir bíða spenntir eftir öllum nýju bókunum sem koma út á þessum tíma. Ég eins og margir aðrir fékk Bókatíðindin inn um lúguna heima hjá mér og gægðist í blaðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×