Innlent

Göngustíg að Sólheimajökli lokað vegna grjóthruns

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Sólheimajökull.
Sólheimajökull. Vísir/Vilhelm
Göngustíg frá bílastæðinu við Sólheimajökul að jöklinum hefur verið lokað vegna aurskriðu og grjóthruns.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi. Grjót og aur er enn að hrynja og af því stafar mikil hætta samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni.

Lokunin er til bráðabirgða þar til búið er að skoða og meta aðstæður en Sólheimajökull er vinsæll áningarstaður ferðamanna hér á landi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×