Þyngd vagnlestar vörubílsins vel yfir leyfðri heildarþyngd ökutækja á brúnni Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 23. nóvember 2016 10:27 Slysið varð í ágúst í fyrra. mynd/lögreglan á blönduósi
Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur komist að þeirri niðurstöðu að vörubíll sem keyrði yfir brúna yfir Vatnsdalsá við Grímstungu í ágúst í fyrra, með þeim afleiðingum að brúin hrundi, hafi verið of þungur fyrir brúna. Þá hafi þyngd vagnlestar vörubílsins verið vel yfir leyfðri heildarþyngd ökutækja á brúnni. Í skýrslu nefndarinnar er lýsing á slysinu en það varð að morgni 18. ágúst 2015. Eystri brúarhaf brúarinnar yfir Vatnsdalsá hrundi þegar vörubifreið með festivang var ekið inn á hana en verið var að flytja jökulruðning frá námu austan árinnar rúma fjóra kílómetra að vinnusvæði vegaframkvæmda vestan megin í dalnum. Brúin gaf sig þegar vörubílnum var ekið inn á hana og féll niður af stöplunum vestan megin. „Brúin hrundi harkalega niður undan bifreiðinni og heppilegt að bifreiðin valt ekki. Samkvæmt ökumanni var þetta 28. ferðin með hlass yfir brúna á tveimur dögum. Ökumaðurinn, 42 ára karlmaður, var ekki spenntur í öryggisbelti og kastaðist hann til og hlaut nokkra áverka í slysinu. Var hann meðeigandi fyrirtækisins sem á vörubifreiðina og verktaki hjá aðalverktaka vegaframkvæmdanna,“ segir í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Engar sérstakar þungatakmarkanir voru á Vatnsdalsvegi né á brúnni þegar slysið varð og var því leyfilegt að aka yfir brúna með 40 tonna heildarþunga. Það er hins vegar mat nefndarinnar að heildarþungi vörubílsins sem brúin hrundi undan hafi verið að lágmarki 57 tonn. Er það ein orsök slyssins en einnig er það mat nefndarinnar að ekki hefði átt að leyfa „40 tonna álagslest á brúnni svo hún hefði sambærilegt öryggi og aðrar brýr.“ Þá skerti skemmt á þrýstistöng burðargetu brúarinnar.Skýrslu rannsóknarnefndarinnar má sjá í heild sinni hér.
Tengdar fréttir Brú yfir Vatnsdalsá hrundi undan flutningabíl Brúin var komin til ára sinna. 18. ágúst 2015 14:16 Mest lesið Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Innlent Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku Innlent Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Innlent Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest Innlent Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Innlent Skófundur á Everest gæti leyst hundrað ára gamla ráðgátu Erlent Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja Innlent Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs Innlent Ríkisstjórnin á hengiflugi Innlent Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni Innlent Fleiri fréttir Tvö kvenfélög taka á móti karlmönnum Bein útsending: Ávarp Sigmundar Davíðs á flokksráðsfundi Staðan á ríkisstjórninni og félagsmálaráðherra svarar fyrir símtalið Veitir samstarfsflokkunum nokkurra sólarhringa frest Lokaleit að ísbjörnum með dróna Ríkisstjórnin á hengiflugi Slysið í Stykkishólmi alvarlegt Ellefu tímar sárþjáður á bráðamóttöku Ísland má ekki vera söluvara erlendra glæpagengja Barn ógnaði lögreglumanni með eftirlíkingu af skammbyssu Safnast í kvikuhólfið en ómögulegt að segja hvenær gýs Örfáar raddir nýti sér Kveik sem vopn gegn skátum Vonast til að fleiri fái niðurgreiðslu á sprautunni Netverjar keppast við að tjá sig um fundinn Talið að snjór hafi villt um fyrir ferðamönnum Kornbændur á Suðurlandi bera sig vel Þyrlan kölluð út vegna tilkynningar um hvítabirni „Meðvituð um að það eru veikleikar í stjórnarsamstarfinu“ Hver er framtíð ríkisstjórnarinnar? Allir tónlistarkennararnir til í verkfall Þórarinn víkur sem formaður Sameykis Þurfi ekki skarpskyggni til að sjá krísuástandið Sjálfstæðisflokkurinn tilbúinn í kosningar Lýsir hrottafengnu ofbeldi í Reykholti: Bundinn á meðan köldu vatni var bunað á hann Engin niðurstaða á fundi Sjálfstæðisflokksins Dæmdur fyrir að nema eigið barn á brott Miður að misbrestur hafi orðið í þjónustu neyðarmóttökunnar Efla Hagstofuna í kjölfar talnaruglsins Grunar að veikindi flugáhafna tengist efni sem finnst í smurolíu Viðskiptalífið sérstaklega áhugasamt um að fylgja Höllu út Sjá meira