Renzi stendur við loforð um afsögn Guðsteinn Bjarnason skrifar 6. desember 2016 07:00 Matteo Renzi, forsætisráðherra Ítalíu, hélt blaðamannafund og tilkynnti afsögn sína í gær. Nordicphotos/AFP
Matteo Renzi sagði af sér í gær sem forsætisráðherra Ítalíu eftir að tillögur hans um breytingar á stjórnskipan landsins voru felldar í þjóðaratkvæðagreiðslu með 59,1 prósenti atkvæða. Kosningaþátttakan var 68 prósent. Framhaldið er óljóst, en til að byrja með er það í höndum Sergios Mattarella forseta sem gat neitað að fallast á afsagnarbeiðni forsætisráðherrans, sem þyrfti þá að óska eftir stuðningsyfirlýsingu frá þinginu. Forsetinn gæti einnig fengið annan ráðherra eða utanþingsmann til að mynda starfsstjórn þangað til kosið verður nýtt þing. Kjörtímabil þjóðþingsins rennur reyndar ekki út fyrr en vorið 2018. Demókrataflokkur Renzis verður því enn um sinn með sterka stöðu á þinginu, þótt hann yfirgefi forsætisráðuneytið. Renzi sagðist ekki sjá eftir neinu: „Ég er stoltur af því að stjórnin hafi gefið almenningi tækifæri til að tjá sig um umbæturnar. Margir hafa kynnst stjórnarskránni betur,“ sagði hann seint á sunnudagskvöld, þegar úrslitin voru orðin ljós. Hann taldi nauðsynlegt að gera róttækar breytingar á stjórnarskrá landsins til þess að auðvelda ríkisstjórninni að takast á við efnahagsvandann, sem íþyngir landsmönnum. Breytingarnar mættu hins vegar mikilli mótstöðu. Margir óttuðust afleiðingarnar af því að styrkja miðstjórnina í Róm á kostnað héraðsstjórnanna. Helsti andstæðingur stjórnlagafrumvarps forsætisráðherrans var Beppo Grille, leiðtogi Fimmstjörnuhreyfingarinnar, sem er þriðja stærsta aflið á ítalska þjóðþinginu. Hann fagnaði brotthvarfi Renzis. Margir óttast afleiðingarnar af niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar, aðallega fyrir efnahagslífið á Ítalíu sérstaklega, en einnig fyrir evruna og efnahagsástand Evrópusambandsríkjanna almennt. Evran féll í verði þegar ljóst var að Renzi myndi segja af sér, en náði sér reyndar fljótlega aftur. Þá féllu verðbréf í ítölskum bönkum, en þeir eru margir með miklar skuldir á herðunum. Líkur á því að þeim takist að endurfjármagna sig á næstunni þykja hafa minnkað verulega.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Ekki í lífshættu eftir stunguárás í Austurbænum Innlent Fleiri fréttir Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjá meira