Minnst 33 látnir í vöruskemmunni Samúel Karl Ólason skrifar 5. desember 2016 07:45 Vöruskemman var kölluð Ghost Ship, eða Draugaskipið og voru forsvarsmenn hans ekki með leyfi til tónleikahalds. Vísir/EPA
Búið er að finna minnst 33 lík í vörkuskemmu í Oakland í Kaliforníu eftir að eldur kom upp þar í gær. Tónleikar voru í húsinu þegar eldurinn kviknaði, en einungis er búið að leita í tæplega helmingi hússins. Búist er við því að fjödi látinna muni hækka á næstu dögum. Um hundrað manns voru á tónleikunum. Hægt gengur að leita í húsinu vegna þess hve mikið brak er í því. Meðal hinna látnu er fólk frá Evrópu, Asíu og hefur einn 17 ára táningur fundist. Vöruskemman var kölluð Ghost Ship, eða Draugaskipið og voru forsvarsmenn hans ekki með leyfi til tónleikahalds. Einungis tveir útgangar voru á húsinu og þar voru engar brunavarnir. Þá hefur því verið lýst sem völundarhúsi byggt úr timbri. Gólfið var klætt teppi og samkvæmt East Bay Express mátti þar finna fjölda eldfimra efna. Hægt er sjá myndir úr húsinu og hvernig það var innréttað á Oaklandghostship.com.Fjölmargar kvartanir bárust Börn parsins sem rak Draugaskipið, Derick Ion Almena og Micah Allison, voru tekin af þeim af barnaverndaryfirvöldum í byrjun árs í fyrra þar sem þau bjuggu í vöruskemmunni, ásamt öðru listafólki, og var hún ekki talin íbúðarhæf. Fjölskylda Micah Allison hafði hringt í barnarvendaryfirvöld vegna ástands barnanna. Parið höfðu nýverið fengið yfirráð yfir börnunum á ný. Þau voru ekki í húsinu þegar eldurinn kom upp og er ekki vitað hvar þau eru. Slökkviliðsmenn segja líklegt að fjöldi fólks hafi ekki komist úr húsinu þar sem einn heimagerður stigi, byggður úr vörubrettum, tengdi saman neðri og efri hæð hússins. Embættismenn Oakland voru með húsið til rannsóknar þar sem fjöldi kvartana meðal annars vegna umgengni og ólöglegra breytinga höfðu borist til borgarinnar. Rannsakendur höfðu þó ekki komist inn í bygginguna og tókst þeim ekki að staðfesta að fólk byggi í henni.Fyrrverandi íbúi Draugaskipsins lýsir húsinu sem „dauðagildru“.
Tengdar fréttir Hafa fundið lík 24 einstaklinga sem fórust í eldsvoða á tónleikum í Oakland Einungis er búið að leita á um 20 prósent af svæðinu og því er búist við enn fleiri hafi týnt lífi í eldsvoðanum. Upptök eldsins eru enn óljós. 4. desember 2016 17:48 Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Lilja í uppáhaldi eftir að hún húðskammaði Arnar Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Nýkjörinn formaðurinn hættur og varamenn fá atkvæðisrétt Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Fleiri fréttir Saka rússneskan flugmann um „ófagmannlega“ hegðun „Fordæmalausar“ hörmungar eftir Helenu Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjá meira
Hafa fundið lík 24 einstaklinga sem fórust í eldsvoða á tónleikum í Oakland Einungis er búið að leita á um 20 prósent af svæðinu og því er búist við enn fleiri hafi týnt lífi í eldsvoðanum. Upptök eldsins eru enn óljós. 4. desember 2016 17:48