Bílskúrinn: Einvígið í Abú Dabí Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar 1. desember 2016 17:45 Mercedes liðið fagnar góðum árangri. Vísir/Getty
Nico Rosberg, ökumaður Mercedes liðsins varð heimsmeistari ökumanna með því að koma annar í mark í Abú Dabí. Liðsfélagi hans og fyrrum heimsmeistari, Lewis Hamilton gerði allt sem hann gat til tryggja sér titilinn en allt kom fyrir ekki. Hvernig varðist Hamilton? Er Rosberg verðugur heimsmeistari? Kveðjustund fyrir Felipe Massa og Jenson Button. Þetta og margt fleira í Bílskúrnum, uppgjöri hvers kappaksturs hér á Vísi.Rosberg var kátur eftir keppnina.Vísir/GettyEr Rosberg verðugur heimsmeistari? Hefur Nico Rosberg gert nógu mikið til að eiga titilinn eftirsótta skilið? Já er stutta svarið að mati blaðamanns. Rosberg kom til Mercedes liðsins á jómfrúartímabili þess í Formúlu 1 árið 2010. Hann hefur verið afar mikilvægur þáttur í stíganda liðsins og einokun á ráspólum og verðlaunapöllum, heimsmeistaratitlum og þar af leiðandi verðlaunafé síðustu árin. Einhverjar raddir hafa heyrst um að Rosberg eigi ekki skilið að verða meistari vegna þess að Hamilton hafi lent í meiri vélavandræðum en Rosberg í ár. Rosberg verður ekki kennt um það og hann getur ekki borið ábyrgð á bilunum liðsfélaga síns. Rosberg gerði allt sem hann þurfti til að tryggja sér meistaratitilinn. Hann þurfti að komast á pall að því gefnu að Hamilton ynni keppnina og það gerði hann. Kom í mark annar á eftir Hamilton, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Bretans til að bakka Rosberg niður í vandræði gagnvart Max Verstappen og Sebastian Vettel. Framúrakstur Rosberg á Verstappen verður lengi í minnum hafður sem einn sá svakalegasti. Með titilinn á línunni tók Rosberg fullt af sénsum. Hann komst að endingu fram úr en það munaði litlu að þeir snertust á brautinni. Framúrakstur sem sæmir heimsmeistara.Hamilton, Rosberg, Vettel og Verstappen koma í mark.Vísir/GettyHvernig varðist Hamilton? Hamilton leiddi keppnina frá ræsingu til endamarks, að undanskildum nokkrum hringjum í kringum þjónustuhlé. Hamilton reyndi allt hvað hann gat til að gera Rosberg erfitt fyrir að komast fram úr sér og gott betur en það. Varnartilburðir Hamilton voru þvert á það sem hann hafði sagt fyrir keppnina. Hann reyndi raunar að tefja Rosberg svo Vettel og Verstappen sem voru í þriðja og fjórða sæti gætu komist á milli og fækkað stigum Rosberg í keppninni. Hamilton hefði orðið heimsmeistari ef honum hefði tekist að koma báðum bílunum á milli sín og Rosberg. En það tókst ekki, Rosberg ók einkar vel og tryggði sér titilinn. Mercedes-menn á þjónustusvæðinu voru allt annað en rólegir yfir aksturslagi Hamilton. Meira að segja Paddy Lowe, tæknistjóri Mercedes sagði Hamilton að auka hraðann, þá er málið orðið alvarlegt. Skipanir innan Mercedes liðsins á brautinni koma ekki frá hærri stöðum en Paddy Lowe. Liðsstjóri Mercedes, Toto Wolff sagði eftir keppnina að hann skyldi akstur Hamilton en á hinn bóginn var fyrsta sætið í hættu að mati liðsins og því var Hamilton ekki að sinna hagsmunum liðsins eftir bestu getu.Paddy Lowe og Lewis Hamilton hafa átt betri stundir saman en yfir talstöðina í Abú Dabí. Hér fagna þeir í Bandaríkjunum.Vísir/GettyHvernig verður tekið á Hamilton eftir varnaraksturinn? Ætli fyrrum heimsmeistara verði refsað fyrir athæfið? Rosberg hefur sjálfur sagt að Mercedes eigi að gleyma þessu og fyrirgefa Hamilton aksturslag hans. Hamilton gæti samkvæmt einhverjum heimildum verið rekinn frá Mercedes liðinu fyrir atvikið. Líkurnar á því eru þó harla litlar að mati blaðamanns. Hamilton er á góðri leið með að verða tölfræðilega einn besti Formúlu 1 ökumaður sögunnar. Hann verður því seint rekinn fyrir atvik í einni keppni, þar sem hann sýndi alla burði til að stýra keppninni og reyna að hafa áhrif á hvað gerðist fyrir aftan hann. Mercedes hefur gefið út að það muni taka góðan tíma til að mynda sér skoðun á því hvort og þá hvernig Hamilton verði refsað.Hamilton, Button, Massa og Rosberg.Vísir/GettyMassa og Button kveðja Formúlu 1 Felipe Massa sem var heimsmeistari í nokkrar sekúndur í heimalandi sínu í Brasilíu 2008, þangað til Hamilton stal titlinum, er hættur í Formúlu 1. Massa kvaddi á góðum nótum og var glaður að hafa geta barist fram á síðasta hring. Jenson Button hins vegar varð heimsmeistari með Brawn liðinu árið 2009. Hann er hættur í Formúlu 1 líka, í bili að minnsta kosti. Button er með samning við McLaren liðið út 2018 þar sem hann gæti verið kallaður til, til að aka fyrir liðið ef á þarf að halda. Hann sagði þó um keppnina um helgina að hann myndi tækla hana sem sína síðustu. Endalok ferilsins voru ekki eins og Button hefði óskað sér. Fjöðrunin á McLaren bílnum hans gaf sig snemma í keppninni og Button þurfti að hætta keppni. Þessara tveggja ökumanna verður saknað úr Formúlu 1 en brotthvarf þeirra úr íþróttinni opnar möguleika fyrir nýja ökumenn til að setja sitt mark á Formúlu 1. Stoffel Vandoorne tekur sæti Button hjá McLaren og Lance Stroll tekur sæti Massa hjá Williams.Verstappen verður í baráttunni um titilinn að mati blaðamanns á næsta ári.Vísir/GettySpá blaðamanns fyrir 2017 Miklar breytingar á bílunum eru væntanlegar. Breiðari dekk og breiðari vængir til að nefna það helsta. Það þýðir að loftflæðið mun skipta meira máli en það gerði síðustu þrjú tímabil. Goggunarröðin veðrur líklega endurstillt að nokkru leyti svo það verður afar áhugavert að fylgjast með hvernig staða liðanna þróast innbyrðis. Sterkasta hlið Red Bull liðsins hefur verið vel hönnuð yfirbygging og gott loftflæði sem þýðir mikið niðurtog. Max Verstappen, ökumaður Red Bull liðsins hefur sýnt í síðustu keppnum að hann er efni í heimsmeistara. Ofanritaður spáir því að Verstappen blandi sér í baráttuna um heimsmeistaratitilinn á næsta ári. Takist Red Bull að hanna bíl sem getur skákað Mercedes þá verður Verstappen líklega heimsmeistari. Hann er svo góður. Vonandi getur Ferrari liðið ásamt Mercedes og Red Bull blandað sér í baráttuna og ekki væri verra að sjá McLaren hætta að þjást eins mikið og það hefur verið að gera undanfarin ár. Vonandi verður næsta tímabil jafn spennandi og keppnin sem fór fram í Abú Dabí. Látum okkur hlakka til.
Formúla Tengdar fréttir Hamilton hótaði því að hætta að keyra fyrir Mercedes Það gekk mikið á hjá Mercedes-liðinu í Formúlu 1 á tímabilinu en mestu lætin voru líklega er Lewis Hamilton bauðst til þess að yfirgefa herbúðir liðsins. 1. desember 2016 10:00 Herra og frú heimsmeistari Nico Rosberg tryggði sér í gær heimsmeistaratitilinn í formúlu eitt í fyrsta sinn með því að ná öðru sæti í lokakappakstrinum í Abú Dabí. 28. nóvember 2016 12:00 Rosberg: Ekki auðveldasta keppni sem ég hef ekið Nico Rosberg tryggði sér heimsmeistaratitil ökumanna í hádramatískri keppni í Abú Dabí í dag. Hann kom annar í mark á eftir Lewis Hamilton. Hver sagði hvað eftir keppnina? 27. nóvember 2016 15:36 Rosberg tryggði sér heimsmeistaratitilinn | Sjáðu uppgjörsþáttinn Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir lokakeppni tímabilsins í Formúlu 1. Keppnin var hin besta skemmtun. 27. nóvember 2016 15:16 Mest lesið England: Hver er kominn, að koma, farinn og að fara? Enski boltinn Víkingar á leið til Albaníu Fótbolti „Verður að dæmast af því hvernig við högum okkur í Evrópu í ár“ Fótbolti Enn ein stjarnan slítur krossband í hné Fótbolti Grátlegt tap niðurstaðan og barátta um sæti í A-deild framundan Körfubolti Hin reynda Dinkins í raðir Njarðvíkur Körfubolti Líflátshótunum rignir yfir Víkinga: „Djöfull er þetta lasið“ Fótbolti Stefán Ingi á leið til Noregs Fótbolti Guðmundur Bragi til Danmerkur Handbolti Fyrrum leikmaður Everton í teymi Slot Enski boltinn Fleiri fréttir Ralf Schumacher kemur út úr skápnum Hélt að hann myndi aldrei vinna aftur: „Ég get ekki hætt að gráta“ Hamilton fyrstur í fyrsta sinn í langan tíma Semja við Bellingham Formúlu 1 heimsins McLaren vill að Verstappen verði refsað: Allur heimurinn veit hver er sá seki Russell fagnaði sigri eftir árekstur Verstappen og Norris Þjarmað að Verstappen á blaðamannafundi Biðlar til „klikkaðra samsæriskenningasmiða“ að leita til sálfræðings Verstappen vann sjöunda kappaksturinn á tímabilinu Lando Norris á ráspól á morgun Höfðu hendur í hári fjárkúgara Michael Schumacher Verstappen sigraði í Kanada Russell á ráspól á sama tíma og Verstappen Miklar breytingar framundan á bílum í Formúlu 1 Perez framlengir og framtíð Sainz enn í lausu lofti Alpine framlengir ekki við Ocon eftir áreksturinn í Mónakó Sjá meira
Hamilton hótaði því að hætta að keyra fyrir Mercedes Það gekk mikið á hjá Mercedes-liðinu í Formúlu 1 á tímabilinu en mestu lætin voru líklega er Lewis Hamilton bauðst til þess að yfirgefa herbúðir liðsins. 1. desember 2016 10:00
Herra og frú heimsmeistari Nico Rosberg tryggði sér í gær heimsmeistaratitilinn í formúlu eitt í fyrsta sinn með því að ná öðru sæti í lokakappakstrinum í Abú Dabí. 28. nóvember 2016 12:00
Rosberg: Ekki auðveldasta keppni sem ég hef ekið Nico Rosberg tryggði sér heimsmeistaratitil ökumanna í hádramatískri keppni í Abú Dabí í dag. Hann kom annar í mark á eftir Lewis Hamilton. Hver sagði hvað eftir keppnina? 27. nóvember 2016 15:36
Rosberg tryggði sér heimsmeistaratitilinn | Sjáðu uppgjörsþáttinn Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir lokakeppni tímabilsins í Formúlu 1. Keppnin var hin besta skemmtun. 27. nóvember 2016 15:16