Bó getur ekki sungið um Axel því hann verður ekki heima um jólin Tómas Þór Þórðarson skrifar 19. desember 2016 17:00 Axel Andrésson í búningi Bath City. Mynd/bath
Unglingalandsliðsmaðurinn Axel Andrésson er orðinn upppáhaldið hjá stuðningsmönnum Bath og hann ætlar að spila þar áfram um jól og áramót. Axel Óskar Andrésson, U19 ára landsliðsmaður Íslands í fótbolta, er kominn í mikið uppáhald hjá stuðningsmönnum utandeildarliðsins Bath City þar sem Axel er á láni frá Reading. Hann ætlar ekki að koma heim um jólin heldur spila áfram á Englandi um hátíðarnar. Axel, sem er fæddur árið 1998, samdi við Reading fyrir tveimur árum og hefur verið þar að spila með unglingaliðunum en í lok nóvember var hann lánaður til Bath sem spilar í sjöttu efstu deildinni á Englandi. Þessi stóri og sterki miðvörður, sem á að baki 21 landsleik fyrir U17 og sjö leiki fyrir U19, fékk mikið lof fyrir frammistöðu sína um síðustu helgi þegar Bath lagði Whitehawk, 2-0.„Hann er bara 18 ára og það er ógnvekjandi. Hann kemur inn með svo flotta hluti. Þetta er góður strákur og svo er hann með allt skipulag á hreinu,“ segir Garry Owers, knattspyrnustjóri Bath, um Mosfellinginn. „Leikmönnunum líkar vel við hann og stuðningsmennirnir voru byrjaðir að syngja um hann undir lok leiksins þannig þeir eru líka ánægðir með strákinn. Ég vil halda honum hér eins lengi og ég get.“ „Ég fékk símtal frá Reading en þar var mér sagt að hann ætti flugmiða bókaða heim til Íslands um jólin þar sem hann ætlaði að vera hjá fjölskyldunni sinni. En hann er hættur við það því hann vill vera hér áfram og spila með okkur sem er frábært,“ segir Garry Owers. Axel hefur ekki langt að sækja íþróttahæfileika og hvað þá hæðina eða styrkinn því faðir hans er kraftajötuninn og guðfaðir Skólahreystis á Íslandi, Andrés Guðmundsson. Hann er uppalinn hjá Aftureldingu og spilaði átta leiki í 2. deildinni fyrir Mosfellsfélagið og þrjá í bikar áður en hann var fenginn út til Reading.
Enski boltinn Mest lesið Hveragerði fær stimpilinn frá Mosó Íslenski boltinn Sjáðu fyrstu mörk Orra Steins í treyju Real Sociedad Fótbolti Valsmenn neituðu að veita viðtöl Körfubolti „Ábyrgðin er mín“ Fótbolti Lélegasta lið sögunnar: „Augljóslega er þetta ömurlegt“ Sport Orri með tvennu á Spáni: „Fyrsta stóra kvöldið þitt“ Fótbolti Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Enski boltinn Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Enski boltinn Óska eftir handtökum vegna herferðar gegn Vinicius Fótbolti Dagskráin í dag: Stórleikir í Bestu deild karla og málin gerð upp í Bestu mörkunum Sport Fleiri fréttir Upphafið að endinum hjá Ten Hag? Gerði grín að Konaté sem vildi verða maður leiksins Willum Þór skoraði í endurkomu sigri Birmingham Einstakt afrek Brentford dugði skammt en Everton vann loksins Arsenal skaut Refina í blálokin Palmer skoraði fernu í fyrri hálfleik Liverpool á toppnum „Við tökum stiginu“ Vandræði Man City án Rodri halda áfram Stuðningsmaður safnað milljónum eftir að völlur félagsins skemmdist Markvarslan Alisson í blóð borin Efast um dugnað og hugarfar Rashford Tímabilið búið hjá Rodri Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Kroos ætlaði að fara til United en svo var Moyes rekinn Keane: „Arsenal er með hugarfar smáliðs“ Telur sig geta fyllt skarð Rodri Stjóri West Ham meiddist gegn Liverpool og yfirgaf völlinn á hækjum Stefán fær Arsenal í heimsókn Hvern gæti Man City sótt í stað Rodri? „Eina sem gerir mann betri er að vinna“ Bragðdauft á Old Trafford Liverpool kom til baka eftir að lenda undir Skytturnar skoruðu fimm Arteta varðist ásökunum: „Þá væri ég mjög tregur“ „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Naumur sigur dugði City Nkunku með þrennu gegn D-deildarliðinu Sjá meira