Enski boltinn

Napóleon fótboltans leggur England að fótum sér

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Zlatan fagnar með Jesse Lingard sem virðist hálf smeykur við Svíann.
Zlatan fagnar með Jesse Lingard sem virðist hálf smeykur við Svíann. vísir/getty
„Margir spila á sama staðnum allan ferilinn. En ég hef ferðast um eins og Napóleon og komið, séð og sigrað alls staðar þar sem ég hef drepið niður fæti."

Það eru ekki margir fótboltamenn sem hafa hugmyndaflug til að líkja sér við Napóleon Bónaparte. En Zlatan Ibrahimovic er ekki eins og flestir fótboltamenn. Raunar á hann sér engan líkan.

Eftir að hafa orðið franskur meistari fjórða árið í röð með Paris Saint-Germain og skorað 38 mörk í 31 deildarleik ákvað Zlatan að endurnýja kynnin við José Mourinho hjá Manchester United. Þetta var stórt skref fyrir Svíann, að reyna sig í erfiðustu deild í heimi 35 ára að aldri.

Zlatan slapp með gult spjald fyrir að fara harkalega í Craig Dawson, varnarmann West Brom.vísir/getty
Tekur slaginn

Aldurinn virðist engin fyrirstaða fyrir Zlatan sem hefur aðeins misst af einum deildarleik í vetur. Markvörðurinn David De Gea er eini leikmaður United sem hefur spilað fleiri mínútur en Zlatan í deildinni.

Maðurinn er augljóslega í frábæru formi og heldur sér vel við. Svo hentar enska úrvalsdeildin Zlatan vel. Hann virðist njóta þess að kljást við líkamlega sterka miðverði deildarinnar, enda mikill að burðum. Strax í leiknum um Samfélagsskjöldinn sýndi Zlatan að hann var tilbúinn fyrir enska boltann, þegar hann skoraði sigurmark United eftir að hafa sigrað Wes Morgan, fyrirliða Leicester, í háloftabardaga.

Tölfræðin talar líka sínu máli. Enginn leikmaður hefur brotið oftar af sér í ensku úrvalsdeildinni í vetur og Zlatan (38) og gulu spjöldin eru orðin fimm talsins. Það hljómar e.t.v. kjánalega að hrósa manni fyrir að brjóta af sér og fá spjöld en það sýnir að Zlatan er meira en tilbúinn í líkamlega baráttu. Það þarf ekki að koma á óvart að Zlatan æfir bardagaíþróttir til að halda sér í formi.

Zlatan er kominn með 16 mörk í öllum keppnum í vetur.vísir/getty
Tíu mörk í níu leikjum

Mikilvægast af öllu er þó að Zlatan er búinn að skora 11 mörk í ensku úrvalsdeildinni vetur, jafn mörg og markahæsti leikmaður United á síðasta tímabili, Anthony Martial, gerði.

Eftir þurrkatíð frá miðjum september og fram í byrjun nóvember, þar sem Zlatan skoraði aðeins eitt mark í 11 leikjum, hefur Svíinn verið sjóðheitur að undanförnu. Í síðustu níu leikjum hefur hann skorað 10 mörk, þar af tvö gegn West Brom í fyrradag.

Sóknarleikurinn var vandamál United á síðasta tímabili enda skoraði liðið aðeins 49 mörk í deildinni. Eftir 17 umferðir í ár eru mörkin orðin 24. Það er s.s. ekkert tilefni til að skála - sex lið hafa skorað fleiri mörk en United á tímabilinu - en sókn United er mun beittari en á síðasta tímabili.

Liðið er minna með boltann en í fyrra (54,6% á móti 55,9%) en fleiri heppnaðar sendingar (84,4% gegn 82,3%). Skot að meðaltali í leik í ár eru líka mun fleiri, 15,9 gegn 11,3 í fyrra. Þar munar miklu um Zlatan en enginn leikmaður í deildinni hefur skotið oftar að marki í vetur en hann (74). Næsti maður, Sergio Agüero, er með 61 skot.

Miðverðir ensku úrvalsdeildarinnar eiga fullt í fangi með að reyna að hemja Zlatan.vísir/getty
Stór persónuleiki

Svíinn hefur líka komið með ákveðið viðhorf og sigurhugsun inn í hálf persónuleikalaust lið United. Hann er mjög meðvitaður um eigin gæði og kann manna best á sviðsljósið.

„Hann er stór persónuleiki sem hefur áhrif á alla í kringum sig. Fyrst í stað vissi maður ekki alveg við hverju maður átti að búast en hann er sérstakur náungi, innan sem utan vallar," sagði Andy Cole, fyrrverandi framherji United, um Zlatan eftir leikinn gegn West Brom.

Cole ætti að þekkja stóra persónuleika enda lék hann með Eric Cantona, manninum sem byrjað var að líkja Zlatan við áður en hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Eric Cantona vann fjóra Englandsmeistaratitla á fimm árum hjá Man Utd.vísir/getty
Líkindi með Cantona

Báðir komu þeir Zlatan og Cantona til United þegar félagið var hjálpar þurfi. Þegar Cantona mætti á Old Trafford síðla árs 1992 hafði United ekki unnið enska meistaratitilinn í 25 ár. Þegar hann kvaddi United og fótboltann vorið 1997 var félagið fjórum meistaratitlum ríkari.

Búist er við því að Zlatan fari frá United vorið 2018 svo hann mun ekki kveðja eins og Cantona. En Svíinn ætlar sér að vinna enska meistaratitilinn með United og hann er vanur að standa við stóru orðin.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×