Handbolti

Bjarki Már skoraði þrjú í tapleik og enginn Erlingur

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bjarki Már.
Bjarki Már. vísir/afp
Bjarki Már Elís­son skoraði þrjú mörk fyr­ir Füch­se Berl­in sem tapaði fyrir Flens­burg, 27-26, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Erl­ing­ur Rich­ards­son var rekinn sem þjálfari Füch­se Berl­in í vikunni og var þetta fyrsti leikur liðsins án hans. 

Hans Lindberg var stórkostlegur í liði Refanna og skoraði hann átta mörk úr níu skotum. Holger Glandorf skoraði sjö mörk fyrir Flensburg.

Füch­se Berl­in er með 24 stig í fjórða sæti deildarinnar en Flensburg er í toppbaráttunni með 30 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×