Enski boltinn

Mourinho ánægður með stuðninginn sem Fellaini fékk

Stefán Árni Pálsson skrifar
José Mourinho var ekki sá vinsælasti þegar hann setti stóra Belgann inn á.
José Mourinho var ekki sá vinsælasti þegar hann setti stóra Belgann inn á. vísir/getty
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Manchester United, er ánægður með stuðninginn sem Marouane Fellaini fékk frá stuðningsmönnum liðsins í gær. United vann góðan sigur á WBA og fór leikurinn 2-0.

Fellani hefur verið gagnrýndur mikið á tímabilinu og þykir hann ekki hafa staðið sig vel með liðinu.

Fellani kom inn af varamannabekknum á 83. Mínútu í leiknum í gær og fékk hann góðar viðtökur frá stuðningsmönnunum. „Stuðningsmennirnir voru frábærir,“ sagði Mourinho í samtali við Sky Sports eftir leikinn.

„Í búningsklefanum er hann mjög mikilvægur hópnum og það er því mikilvægt að honum líði vel í hópnum og að hann finni að aðdáendur félagsins séu til staðar fyrir hann.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×