Enski boltinn

Vilja Batshuayi á láni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Batshuayi í leik með belgíska landsliðinu.
Batshuayi í leik með belgíska landsliðinu. vísir/getty
Forráðamenn West Ham United hafa vilja fá Michy Batshuayi á láni frá Chelsea í janúar.

West Ham hefur farið illa af stað í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili og er liðið í fallbaráttu. 

Þessi belgíski landsliðsmaður hefur aðeins leikið í 77 mínútur hjá Chelsea síðan hann kom til liðsins frá Marseille í sumar.

Batshuayi spilaði fyrir Marseille á árunum 2014 til 2016 og skoraði hann 26 mörk í 62 leikjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×