Enski boltinn

Tottenham með sterkan sigur á Burnley | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tottenham Hotspurs vann góðan sigur á Burnley, 2-1, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Ashley Barnes skoraði fyrsta mark leiksins og kom Burnley óvænt yfir. Dele Alli náði að jafna metin fyrir Tottenham aðeins fimm mínútum síðar og var staðan 1-1 í hálfleik.

Það var Danny Rose sem tryggði heimamönnum sigurinn tuttugu mínútum fyrir leikslok, og það með fínu marki.

Burnley er í 16. sæti deildarinnar með 17 stig en Tottenham í því 5. með 33 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×