Enski boltinn

Manchester City upp fyrir Arsenal eftir frábæran sigur | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Manchester City vann gríðarlega mikilvægan sigur á Arsenal, 2-1, í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni.

Theo Walcott kom Arsenal eftir aðeins fimm mínútna leik og kom markið eftir sérstaklega dapran varnarleik.

Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir gestina frá London. Leroy Sane jafnaði metin á 47. mínútu með fínu mark. Það var síðan Raheem Sterling sem skoraði sigurmarkið á 71. mínútu.

Þetta var fyrsta mark Sterling síðan í september og fyrsta markið í 14 leikjum í röð. Arsenal er með 34 stig í deildinni en City er með 36.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×