Enski boltinn

Southampton hirti öll stigin gegn Bournemouth | Sjáðu mörkin

Stefán Árni Pálsson skrifar
Bournemouth og Southampton mættust í ensku úrvalsdeildinni í dag og vann Southampton frábæran útisigur, 3-1, á Vitality vellinum.

Fyrir leikinn voru bæði lið með 21 stig í deildinni en Southampton náði í þrjú mikilvæg stig. Heimamenn komust yfir á sjöttu mínútu leiksins þegar Nathan Ake skoraði fyrir Bournemouth. 

Ryan Bertrand náði að jafna metin fyrir hálfleik og var staðan 1-1 eftir 45 mínútur. 

Jay Rodriguez skoraði síðan tvö mörk fyrir Southampton í síðari hálfleik og fóru gestirnir með öll stigin heim.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×