Enski boltinn

Costa tryggði Chelsea ellefta sigurinn í röð | Sjáðu mörkin

Anton Ingi Leifsson skrifar
Chelsea vann sinn ellefta leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar þeir báru sigurorð af Crystal Palace á útivelli í hádegisleik enska boltans, 1-0.

Eina mark leiksins kom á 43. mínútu þegar Diego Costa skoraði með skalla eftir stoðsendingu frá Cesar Azpilicueta. Fyrsta skallamark Chelsea á leiktíðinni staðreynd.

Chelsea hefur því unnið ellefu leiki í röð og er með níu stiga forskot á Liverpool og Arsenal, en bæði lið eiga leiki til góða. Liðin hefur einungis fengið á sig tvö mörk í síðustu ellefu leikjum.

Palace er hins vegar í ögn verri málum. Þeir eru í sextánda sæti deildarinnar með 16 stig og eru í bullandi fallbaráttu með einungis fjóra sigra í sautján leikjum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×