Draumafélagið búið að bjóða í Aron Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2016 07:57 Aron í leik gegn Barcelona í Meistaradeild Evrópu. vísir/epa
Landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson er með tilboð frá Barcelona í höndunum. Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Aron leikur með ungverska meistaraliðinu Veszprém og hefur gert frá því í fyrra. Veszprém vill halda íslenska landsliðsmanninum en önnur stórlið hafa einnig sýnt honum áhuga. Kiel, hans gamla lið, Paris Saint-Germain og Barcelona hafa borið víurnar í hinn 26 ára gamla Aron. „Ég held að ég hafi sagt í fyrsta viðtalinu mínu þegar ég var 15 ára gamall að draumafélagið væri Barcelona. Auðvitað er það hrikalega spennandi og mig hefur alltaf langað til þess að spila þar. Svo ég er upp með mér að þeir skuli sýna mér áhuga,“ sagði Aron í samtali við Morgunblaðið. „Ég er bara að velta því fyrir mér hvað ég eigi að gera. Ég mun gefa mér góðan tíma og ígrunda það gríðarlega vel hvar ég mun spila á næstu árum. Þetta er örugglega stærsta ákvörðun sem ég hef tekið,“ bætti landsliðsmaðurinn við. Samningur hans við Veszprém rennur út eftir næsta tímabil. Tveir íslenskir handboltamenn hafa leikið með Barcelona; þeir Viggó Sigurðsson og Guðjón Valur Sigurðsson. Sá síðarnefndi yfirgaf Barcelona í sumar eftir tveggja ára dvöl þar. Barcelona er með gríðarlega yfirburði á Spáni en liðið hefur unnið yfir 100 deildarleiki í röð heima fyrir.
Handbolti Mest lesið Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Enski boltinn Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Enski boltinn Skipta dómurum út fyrir gervigreind á sögufræga mótinu Sport Segja Klopp afhjúpa hræsni sína með ráðningunni Fótbolti „Áægður með að hún skuli hafa tekið af skarið og látið til sín taka“ Körfubolti Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur Fótbolti Glódís kemst ekki á verðlaunahátíðina: „Mér finnst þetta bara fáránlegt“ Fótbolti Haukar unnu torsóttan sigur gegn Aþenu Körfubolti Magnaður sigur City á Barcelona og Sædís mætti Juventus Fótbolti Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“ Fótbolti Fleiri fréttir „Ég veit að næsta lyftingaræfing verður öflug hjá þeim“ Valsmenn lágu í valnum eftir góða byrjun „Aðalmunurinn hvernig líkamlegir burðir eru“ FH átti erfitt uppdráttar án lykilleikmanna Vandaverk vængbrotinna FH-inga: „Gefum allt í botn“ Ómar Ingi frábær í öruggum sigri Magdeburg Orðaður við Ísland í fyrra en virðist taka við Svíum Haukar unnu einvígið með 35 marka mun Valskonur flugu áfram í aðra umferðina Arnór lét til sín taka í þriðja sigri Fredericia í röð Óðinn Þór öflugur ÍBV sótti sigur í Garðabæinn Risasigrar hjá Val og Haukum Selfoss komið á blað Fjölnir með frábæran sigur á Stjörnunni Uppgjörið: FH - Valur 23-30 | Valur á flugi og FH ekki eins án Arons Sigursteinn Arndal: FH liðið langt frá sínu besta Grótta tyllti sér á toppinn og KA fékk fyrstu stigin Magdeburg missti heimsmeistaratitilinn „Slúðrað og talað um mig í öllum hornum“ Haukar og HK sættust á stig eftir æsispennandi leik Nítján marka stórsigur hjá Haukum Elliði markahæstur, öruggt hjá Andra og Andreu Óðinn markahæstur í toppslagnum Uppgjörið: Fram - Valur 25-29 | Valur vann stórveldaslag Íslendingaliðið með fullt hús stiga eftir fimm umferðir Þórir sáttur með eftirmanninn: „Hann er sá rétti“ Magdeburg í úrslit fjórða árið í röð Bjarki Már í úrslit á kostnað Barcelona Arftaki Þóris fundinn: „Þetta eru stórir skór að fylla í“ Sjá meira