Bandarískur drengur grófst lifandi undir stórri snjóhrúgu Anton Egilsson skrifar 15. desember 2016 22:24 Fleiri tonn af snjó hrundu ofan á tvo drengi er voru að leik. Vísir/GETTY
Þrettán ára drengur grófst lifandi undir snjóhrúgu í New York í dag en talið er að fleiri tonn af snjó hafi fallið á ofan á hann. Enn er ekki vitað með vissu um orsök slyssins en líkur eru taldar á að snjóplógur hafi ýtt við hrúgunni. BBC greinir frá. Var drengurinn ásamt öðrum vini sínum að leik þegar hrúgan féll ofan á þá. Eftir að drengirnir höfðu ekki skilað sér heim til sín á tilskildum tíma hóf lögregla leit af þeim. Með hjálp leitarhunda tókst að finna sleða sem þeir höfðu tekið með sér út. Var því farið að grafa í hrúgunni og eftir margra klukkustunda leit fannst annar drengurinn meðvitundarlaus. Var hann úrskurðaður látinn skömmu eftir komu á spítala. Hinn drengurinn fannst rúmri klukkustund síðar en hann var á svæði þar sem súrefni náði til hans og komst hann lífs af. Á drengurinn sem komst lífs af að hafa sagt við lögreglu að það eina sem hann muni eftir er að hann hafi heyrt píp rétt áður en að „allt varð svart“. „Þetta var algjört slys, það er það eina sem ég get sagt. Það var engin leið fyrir nokkurn mann að sjá að drengirnir væru grafnir undir hrúgunni” sagði lögregla á svæðinu.
Mest lesið Helga Mogensen látin Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Stór skjálfti í Goðabungu Innlent Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Erlent Síðasta farþegaflug Air Atlanta á Boeing 747-júmbóþotunni Innlent Bein útsending: Menntaþing 2024 – Aðgerðir í menntaumbótum og viðbrögð við PISA Innlent Boðað til fundar ráðuneyta og nefnda Alþingis um Ölfusárbrú í dag Innlent Fleiri fréttir Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Einn stærsti fellibylur síðustu hundrað ára veldur usla í Flórída Vísbending um að jörðin gæti lifað áfram sem niflheimur Sjá meira