Menning

Ævintýrabragur á hlutunum en sögusviðið íslenskt

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
"Það var mjög skemmtilegt að gera bókina. Ég var líka með svo gott samstarfsfólk,“ segir Eva Rún.
"Það var mjög skemmtilegt að gera bókina. Ég var líka með svo gott samstarfsfólk,“ segir Eva Rún. Vísir/GVA

Hvað gerist þegar hugarflugið verður að alvöru afli? Um það fjallar sagan Lukka og hugmyndavélin eftir Evu Rún Þorgeirsdóttur.

„Það er ævintýrabragur á hlutunum en samt er sögusviðið ramm­íslenskt,“ segir Eva Rún, rithöfundur og jógakennari, um nýja bók sína.

„Ég ætla bókina einkum sjö til ellefu ára börnum. Mér finnst gaman að skrifa fyrir þann aldurshóp, ég hef verið að kenna honum ritlist og þekki það að krakkar á þessum aldri eru gríðarlega skapandi. Svo vita þeir líka svo margt,“ útskýrir hún og lýsir síðan efni bókarinnar lauslega.

„Uppfinningastelpan Lukka er ekkert hress með að þurfa enn einu sinni að fara með foreldrum sínum og bróður í vinnuferð út á land. En hugarflug Lukku verður að alvöru afli þegar óvæntir atburðir gerast, eins og í rólega bænum Smáadal þar sem mörg hundruð kindur hverfa í skjóli nætur.“

Ein teikninganna í bókinni.Mynd/Logi Jes Kristjánsson

Lukka og hugmyndavélin er ríkulega myndskreytt bók, þökk sé Loga Jes Kristjánssyni sem hefur fengist við að teikna frá unga aldri, er útskrifaður grafískur hönnuður úr bandarískum skóla en starfar nú hjá Ríkislögreglustjóra.

„Við Logi erum félagar og vinir en erum að fást við ólíka hluti dags daglega, hann í löggunni og ég að kenna jóga. Samt bæði að reyna að bæta heiminn og eigum það sameiginlega áhugamál að búa til gott efni fyrir börn,“ segir Eva Rún.

Myndirnar eru nostursamlegar pennateikningar og þær eru margar.

„Við erum að reyna að ná til ungra lesenda sem eru vanir myndmáli en ekki farnir að leggja í stóru skáldsögurnar. Það er margt sem gerist í sögunni og myndirnar eiga að hjálpa börnum að halda athyglinni,“ segir Eva Rún sem kveðst þegar farin að leggja línurnar að framhaldi.

Hún hefur farið milli skóla að undanförnu og lesið upp fyrir nemendur 1. til 4. bekkjar. „Börnin hlusta með mikilli eftirvæntingu og ég vel æsispennandi kafla enda er Lukka og hugmyndavélin spennubók,“ segir hún.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 13. desember 2016.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.