Vinkonan varð forseta að falli Guðsteinn Bjarnason skrifar 13. desember 2016 07:15 Töfraprestar njóta mikilla vinsælda og jafnvel virðingar meðal almennings í Suður-Kóreu, ekki ósvipað stjörnuspáfólki og læknamiðlum á Vesturlöndum. Vísir/AFP
Á laugardaginn mættu tugir þúsunda Suður-Kóreumanna út á götur höfuðborgarinnar Seúl, enn eina ferðina, til að krefjast þess að Park Geun-Hye forseti láti tafarlaust af völdum. Daginn áður hafði þjóðþing landsins samþykkt að svipta hana völdum vegna embættisglapa. Hwang Kyo-ahn forsætisráðherra tekur við völdum hennar til bráðabirgða, meðan hæstiréttur landsins tekur afstöðu til embættissviptingarinnar. Það gæti tekið hálft ár. Mannfjöldinn á laugardag mætti bæði til að fagna sigri eftir margra vikna fjöldamótmæli gegn Park, en um leið til að lýsa óþoli sínu gagnvart því að Park hafi ekki endanlega sagt skilið við stjórnmálin. Hafni hæstiréttur embættissviptingunni tekur hún aftur við völdum, en staðfesti dómstóllinn hana þá verður efnt til kosninga innan tveggja mánaða. Óþol almennings gagnvart Park spratt nokkuð skyndilega upp í október síðastliðnum, fyrir aðeins tveimur mánuðum, eftir að vinkona hennar, Choi Soon-sil, var handtekin og ákærð fyrir að hafa notfært sér vináttu þeirra til að hagnast persónulega og hafa víðtæk áhrif á stjórn landsins. Þær Park og Choi hafa þekkst lengi, en Choi er sögð vera það sem kallað er mudang, einhvers konar seiðmaður eða töfraprestur sem Park leiti iðulega til þegar hún þarf ráðleggingar. Mjög algengt er að íbúar Suður-Kóreu leiti til töfrapresta af þessu tagi, enda þótt flestir virðist gera sér grein fyrir að þar sé um hjátrú og jafnvel loddaraskap að ræða. Park er sögð hafa leitað fyrst til föður vinkonu sinnar, Choi Tae-min, árið 1974 eftir að móðir hennar var myrt þegar reynt var að ráða föður hennar af dögum, en faðir hennar var Park Chung-hee sem var einræðisherra Suður-Kóreu í tæpa tvo áratugi frá 1963 þangað til hann var svo myrtur árið 1979. Choi Tai-min var þekktur seiðkarl eða töfraprestur af því tagi sem Suður-Kóreumenn leita enn til í stórum stíl. Hann sagðist geta komið fjölskyldunni í samband við anda móðurinnar myrtu. Smám saman varð hann mikill trúnaðarvinur Parks en þegar frá leið tók dóttir hans við því hlutverki. Hún er sem sagt sökuð um að hafa misnotað sér þessi nánu vináttutengsl við Park forseta, og Park forseti er sökuð um að hafa látið vinkonu sína komast upp með að misnota tengslin. Óþol almennings gagnvart þessu virðist þó ekki síst stafa af efnahagslegu óöruggi landsmanna, sem horfa upp á ríka valdafólkið hjálpa kunningjum sínum að auðgast og komast til áhrifa. Hneykslunaraldan hefur drifið tugi og stundum hundruð þúsunda manna út á götur höfuðborgarinnar hverja helgina eftir aðra frá því í lok október.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Kona á fertugsaldri lést í slysinu á Sæbraut Innlent Helga Mogensen látin Innlent Hámhorfa Netflix og hanga í síma en gleyma börnunum Innlent Segir komið í veg fyrir að einkabíll fái eðlilegt pláss í Reykjavík Innlent Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Erlent Göngubrúin átti að vera tilbúin í síðasta lagi í sumar Innlent Bílnúmerin voru pappaspjöld vafin í plastpoka Innlent Ekki í lífshættu eftir stunguárás í Austurbænum Innlent Tveir teknir með þýfi á leið í Norrænu Innlent Tvímenningar taldir tengjast Elko-málinu Innlent Fleiri fréttir Sérsveitarmenn gera áhlaup á Líbanon í undirbúningi innrásar Fyrsti sigur hægriöfgaflokks frá seinna stríði Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Rangt af Netflix að halda því fram að Baby Reindeer væri „sönn saga“ Þrjátíu fórust í einni sýslu í Norður-Karólínu Ísraelar herja á miðborg Beirút Frelsisflokkurinn stærstur í Austurríki Ísrael gerir loftárásir á Jemen Hera Björk segir frá raunum sínum í Georgíu Fólk stekkur á milli húsþaka til að komast lífs af Átta ára drengur skotinn í höfuð og andlit Fimmtán látnir í nýjustu árásum Ísraelshers Segir Harris veika á geði Segir Ísrael í fullum rétti á að verja sig frá Hezbollah Minnst 66 látnir eftir flóð í Nepal Kallar eftir stuðningi allra múslima við Hezbollah Neyddist til að aflífa 125 krókódíla í útrýmingarhættu Öllum flugferðum til Beirút aflýst Stefnir í sögulegan sigur hægriöfgaflokks í Austurríki Drakk beint úr könnunni og svelgdist á Leiðtogi Hezbollah allur Loftárásir á meint vopnabúr Hezbollah í Beirút Orbán ber til baka ummæli ráðgjafa um uppgjöf fyrir Rússum Tugir látnir í fjórum ríkjum af völdum Helenar Borgarstjóri New York lýsir yfir sakleysi sínu Netanjahú sagðist mættur til að svara „lygum“ annarra þjóða Gerðu umfangsmikla atlögu að leiðtoga Hezbollah Selenskí fundaði með Trump Sjö hundruð liggja í valnum eftir vikuna Nýjasti kafbátur Kínverja sökk við bryggju Sjá meira