Enski boltinn

Messan: Sanchez virkar á mig sem götufótboltamaður

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Alexis Sanchez hefur verið frábær í liði Arsenal í vetur og er eðlilega í uppáhaldi hjá Messudrengjum eins og svo mörgum öðrum.

Drengirnir hrósuðu honum fyrir einstakan vilja og vinnusemi en Hjörvar hefur samt smá áhyggjur.

„Það sem ég óttast fyrir hönd Sanchez er að hann er aldrei hvíldur. Hann er mannlegur og það hlýtur að koma að því að hann verði þreyttur,“ sagði Hjörvar Hafliðason en Gummi Ben og Reynir Leósson hafa minni áhyggjur af því.

„Hann virkar á mig sem götufótboltamaður eins og Suarez. Það eru sömu gen og hann verður ekkert þreyttur,“ sagði Gummi Ben.

Sjá má umræðuna um Sanchez hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×