Viðskipti innlent

Laun endurspegla kynjaðan vinnumarkað út um allt land

Sveinn Arnarsson skrifar
Uppbyggin hins opinbera hefur verið að miklu leyti í stóriðju.
Uppbyggin hins opinbera hefur verið að miklu leyti í stóriðju. vísir/vilhelm
„Þarna kristallast atvinnustefna stjórnvalda síðustu ár og áratugi þar sem hið opinbera hefur fjárfest mikið í karllægum störfum á landsbyggðinni,“ segir Kristín Ástgeirsdóttir jafnréttisstýra en laun kvenna voru frá 52 til 69 prósent af launum karla á síðasta ári samkvæmt greiningu ríkisskattstjóra.

Mestur var munurinn á Austurlandi, þar sem konur voru rétt með um helming af launum karla, en minnstur var munurinn á höfuðborgarsvæðinu, þar sem laun kvenna voru tæplega 70 prósent af launum karla. „Í þessum gögnum sjáum við einnig að konur eru þá líklegri til hlutastarfa og vinna störf sem gefa þeim minni laun en karlar, eins og umönnunarstörf til að mynda.“

Munurinn er mestur á Austurlandi
Þrátt fyrir að munur á launum kynjanna sé mestur á Austurlandi eru laun kvenna í landshlutanum næsthæst ef mið er tekið af þessari gömlu svæðaskiptingu. Aðeins á höfuðborgarsvæðinu eru laun kvenna hærri. Hins vegar skera laun karla sig úr á Austurlandi og eru langhæst þar.

Hafa ber í huga að greining ríkisskattstjóra nær til allra framteljenda á landinu óháð bakgrunni þeirra, svo sem hvort um nema sé að ræða hlutastarfsmenn að einhverju leyti.

Kristín Ástgeirsdóttir
„Það að konur séu með þetta lægri laun en karlar segir okkur svo mikið um stöðuna sem nú er og hvað við erum í raun komin stutt á leið með jafnréttið. Kynskiptur vinnumarkaður er ekki af hinu góða og við þurfum að rétta og jafna hlut kvenna á íslenskum vinnumarkaði,“ segir Kristín.

Laun karla eru frá fjórum milljónum á ári upp í allt að 4,6 milljónir króna á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar sker Austurland sig úr hvað laun karla snertir en meðaltekjur karlmanna á Austurlandi eru rúmlega 5,3 milljónir króna á ári. Uppbygging stóriðju í Fjarðabyggð auk sterkra sjávarútvegsfyrirtækja hefur þar eitthvað að segja og karlar líklegri til að sækja í þau störf en konur.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu






Fleiri fréttir

Sjá meira


×