Enski boltinn

Giroud mun framlengja við Arsenal

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Olivier Giroud.
Olivier Giroud. vísir/getty
Þó svo tímabilið hafi ekki verið gott hjá Olivier Giroud, leikmanni Arsenal, þá getur hann glaðst yfir því að félagið ætlar samt að semja við hann upp á nýtt.

Giroud hefur ekki spilað mikið í vetur fyrir Arsenal en fagnaði sínum fyrsta leik í byrjunarliðinu í deildinni í vetur með því að skora sigurmarkið gegn WBA á annan dag jóla.

Þó svo tækifærin hafi verið af skornum skammti líður framherjanum vel hjá félaginu.

„Ég kom seint til móts við liðið eftir EM. Það var gott að fá hvíldina en þá var annar maður kominn í framlínuna sem var að standa sig vel,“ sagði Giroud.

„Þetta er búið að vera erfitt tímabil að mörgu leyti því ég var líka meiddur í mánuð. Það var stórt fyrir mig að skora sigurmarkið gegn WBA. Ég mun halda áfram að leggja hart að mér. Ég er ekki búinn að skrifa undir nýja samninginn en geri það líklega fljótlega.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×