Innlent

Komin til meðvitundar eftir köfunarslys

sunna karen sigurþórsdóttir skrifar
Frá köfun í Silfru.
Frá köfun í Silfru. vísir/Vilhelm
Kona var flutt á slysadeild Landspítalans eftir köfunarslys í Silfru á Þingvöllum á tólfta tímanum í dag. Hún komst til meðvitundar á slysstað og er vel haldin, að sögn lögreglunnar á Suðurlandi.

Lögregla og sjúkraflutningamenn mættu á svæðið um klukkan hálf eitt í dag en aðstæður voru afar krefjandi sökum veðurs og óvíst var um tíma hvort aka ætti til höfuðborgarinnar. Aftakaveður var á leiðinni til Reykjavíkur, en að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu gekk allt vel.

Lögreglan á Suðurlandi segir að ekki liggi fyrir að svo stöddu hvernig slysið atvikaðist, en málið er í rannsókn. RÚV greinir frá því að konan hafi verið í köfun með eiginmanni sínum.


Tengdar fréttir

Köfunarslys í Silfru

Köfunarslys varð í Silfru á Þingvöllum á tólfta tímanum í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×