Enski boltinn

Upphitunarmyndband: Kemst Liverpool aftur í annað sætið?

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Liverpool fær í dag tækifæri til að endurheimta annað sæti ensku úrvalsdeildarinnar af Manchester City er liðið tekur á móti Stoke á Anfield.

Síðast þegar liðin mættust á Anfield vann Liverpool öruggan 4-1 sigur en Liverpool hefur tapað aðeins einum leik síðan í ágúst en það var í óvæntu 4-3 tapi gegn Bournemouth í byrjun mánaðarins.

Stoke hefur ekki unnið þrjá síðustu leiki sína í deildinni og er í tólfta sæti deildarinnar með 21 stig, sextán stigum á eftir Liverpool.

Liðið gæti þó endurheimt Ibrahim Afellay úr erfiðum meiðslum í dag en Hollendingurinn sleit krossband í hné í apríl. Marko Arnautovic er þó enn í leikbanni og verður því ekki með Stoke í kvöld.

Af meiðslamálum Liverpool er það helst að frétta að ólíklegt er að Joel Matip og Philippe Coutinho verði leikfærir fyrir leikinn í kvöld.

Upphitunarmyndband fyrir leikinn má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×